Vinnslustöðin er Eyjasamfélaginu mikilvæg
16. júlí, 2024
Vinnslustöðin er að vinna í að hanna tvo báta, einn 29 metra togbát og svo einn 42 m netabát með möguleika á togveiðum. Byrjað er að hanna 29 metra bátinn. Við byrjuðum á að hanna vinnsludekkið og lestina, stefnt er á að lestin verði mannlaus og með 280 kör. Togkraftur er áætlaður tæp 30 tonn og afl út á skrúfu 1000kW. Stefnum á að bjóða út smíðina á þessum bát í haust. Þá er stefnan að fara á fullt í hönnun á 42 metra bátnum og geta boðið það út á vordögum.

Vinnslustöðin er einn stærsti, ef ekki stærsti, vinnuveitandi í Eyjum.  Alls vinna hjá félaginu 460 manns, þar af um 380 í Vestmannaeyjum.  Félagið velti 33 milljörðum á síðasta ári.  Það er því augljóslega mikilvægur hlekkur í sterkri keðju Eyjanna. 

Allir sem þekkja eitthvað til Eyjanna, þekkja til Vinnslustöðvarinnar.  Við fengum Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binna í Vinnslustöðinni, til að fara yfir stöðuna með okkur, segja okkur frá stöðunni eins og hún er í dag og hvernig hann sér framtíð félassgins fyrir sér. 

Vinnslustöðin er ekki bara eitt, heldur mörg félög.  Vinnslustöðin sjálf er að verulegu leyti eins og hún hefur verið undanfarna áratugi.  Við erum með saltfiskvinnsluna á sínum stað, en erum reyndar að byggja nýtt hús yfir hana, svo er uppsjávarvinnslan í nýbyggðu húsnæði og þessu auk þess er  útgerðin eins og verið hefur, annars vegar uppsjávarútgerð og hins vegar botnfiskútgerð.  

 En þessu til viðbótar, þá á Vinnslustöðin allt hlutafé Hugins, sem á og rekur samnefnt skip, Ós, sem á og rekur Þórunni Sveinsdóttur VE, Leo Seafood, fiskvinnslu, og svo má ekki gleyma Marhólmum, félagi sem sérhæfir sig í fullvinnslu loðnu-, þorsk- og ufsahrogna.  Þá á Vinnslustöðin meirihluta í Hólmaskeri, félagi sem starfar í Hafnarfirði og sérhæfir sig í handflökun á ýsu. Auk þessa á Vinnslustöðin Grupeixe, félag í Portúgal, sem selur og dreifir þurrkuðum saltfiski sem aðallega er unninn í Eyjum.   Þetta er að sjálfsögðu heilmikil starfsemi. Þess utan eigum við svo hlut í hausaþurrkuninni Löngu og í niðursuðufyrirtækinu Idunni Seafoods hér í Eyjum. 

Söluskrifstofur víða um land 

Svo má ekki gleyma því að við erum með söluskrifstofur í Þýskalandi, Frakklandi, Japan, Finnlandi og Portúgal auk þess að vera með skipulagningu á sölu og flutningum afurða félagsins í VSV Seafood Iceland, sem er staðsett í Eyjum.  Það er því heilmikil breyting frá því sem áður var.  

Nú er Vinnslustöðin aðallega staðsett í Eyjum, eins og þú lýsir, en hvernig er með starfsemi í Hafnarfirði og út um heim.  Er þetta ekki flókið að stýra þessu öllu? 

,,Nei, það er ekki flókið.  Eftir að við fengum COVID-ið, þá varð allt miklu auðveldara.  Við tökum flesta fundi í fjarfundabúnaði þar sem við deilum gögnum og vinnum saman.  Við erum t.d. eiginlega alveg hætt að fara til Reykjavíkur á fundi með bönkum sem var oft og iðulega.  Það lærðu allir að nota fjarfundabúnað sem er mikil blessun fyrir okkur.  Ferðalög hafa hreinlega minnkað með stærra og umfangsmeira félagi!“ sagði Binni. 

 

Binni er lærður búfræðingur og sveitin og hestamennskan heilla.

 

Rík samfélags ábyrgð 

Öllum er ljóst að umfang Vinnslustöðvarinnar er mikið í Eyjum og það er mikið litið til ykkar í ýmsum málum.  Þið sætið gagnrýni fyrir ýmislegt, þið mættuð gera meira og koma að fleiri málum.  Hvert er ykkar sjónarhorn á því? 

,,Við gerum okkur grein fyrir ríkri samfélagslegri ábyrgð Vinnslustöðvarinnar.  Við erum augljóslega mikilvægt félag í Eyjum.  En hver er samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja?  Ég held að fáir sjái hana sömu augum.  Í mínum huga er mikilvægasta ábyrgð fyrirtækja, sérstaklega fyrirtækja eins og Vinnslustöðvarinnar og Ísfélagsins, sem eru stór og þýðingarmikil í sínum samfélögum, að þau séu vel rekin og skili hagnaði.  Fyrirtæki sem ekki skilar hagnaði á í rekstrarerfiðleikum og fer á hausinn fyrr eða síðar og getur því ekki borið samfélagslega ábyrgð.  Fyrirtæki í hagnaðarrekstri skapa trausta atvinnu og ný atvinnutækifæri sem er undirstaða þess að fólk vilji búa á þeim stöðum eða í þeim löndum.   Fyrirtæki í hagnaðarrekstri geta fjárfest í nýsköpun eða fært út kvíarnar, eins og Vinnslustöðin hefur vissulega verið að gera.  Með kröftugri atvinnustarfsemi þá skapast skatttekjur til sveitarfélaganna og þau geta staðið undir sinni þjónustu við íbúana.  Þannig má lengi telja.  Hagnaðarrekstur fyrirtækja er undirstaða þess að þau geti verið samfélagslega ábyrg.  Hún er t.d. ekki mikil samfélagsleg ábyrgð í þeim löndum þaðan sem fólk er að flýja!“ segir Binni. 

Margt í gangi 

En framtíðin, hvernig sér Binni framtíð Vinnslustöðvarinnar fyrir sér? 

,,Það er rosalega erfitt að spá.  Þegar ég lít til baka þá hefði mér aldrei dottið til hugar að við værum komin þangað sem við erum í dag.  Margir spáðu Vinnslustöðinni gjaldþroti árið 1999 þegar ég tók við sem framkvæmdastjóri.  Ég hafði enga trú á mér í starfið þegar ég réði mig í sex mánuði það árið.  En einhvern veginn tókst þetta allt með samstilltu átaki og góðu starfsfólki.  Gott starfsfólk er lykillinn að árangri í fyrirtækjarekstri, alveg eins og í hópíþróttum.  Góð gæði einstaklings í handbolta skipta litlu máli ef liðið er lélegt!   

Okkar glíma núna er að við erum að endurnýja saltfiskvinnsluna með nýbyggingu sem þegar er farin af stað.  Þá byggingu ætlum við líka að nýta fyrir uppsjávarvinnsluna en þar erum við knúin til endurbóta á innvigtun í kjölfar reglugerðabreytinga.  Síðan er brýn nauðsyn að endurnýja botnfiskskipin, Kap og Drangavík, sem eru orðin lúin og ekki í takt við nútímann.  Við vonum bara að allt þetta gangi vel og við ráðum við að greiða af þeim skuldum sem við höfum stofnað til og þurfum að gera í tengslum við uppbyggingu okkar.  Þar þurfum við á hverri krónu að halda.“ segir Binni að lokum. 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.