Vinnslustöðin kaupir nýjan togara
Vinnslustöðin hf. hefur samið við skipasmíðastöð í Rongcheng í Kína um að smíða togara sem hannaður er af verkfræðistofunni Skipasýn. Skipið verður afhent 2016 og kostar um 1.500 milljónir króna en skipinu er ætlað að leysa togarann Jón Vídalín VE af hólmi, sem er 42 ára gamall. �?etta kemur fram í fréttatilkynningu sem Vinnslustöðin sendi frá sér í dag.
�??Nýi togarinn verður um 50 metra langur og 13 metra breiður. Með sérstakri hönnun skrokks og óvenju stórri skrúfu, miðað við stærð skipsins, verður skipið 60% aflmeira en Jón Vídalín án þess að olíunotkun aukist að sama skapi. Skipið verður búið þremur rafdrifnum togvindum og getur dregið tvær botnvörpur samtímis. Tæknibúnaður verður allur eins og best verður á kosið og aðbúnaður áhafnar í samræmi við nútímakröfur.�??
Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að eigendur og starfsmenn Vinnslustöðvarinnar og Hraðfrystihússins Gunnvarar í Hnífsdal hafi starfað saman allt frá árinu 2010 að undirbúningi nýsmíða eins togara fyrir hvort fyrirtæki. Fengin hafi verið tilboð frá skipasmíðastöðvum í Danmörku, Kína, Noreg, Póllandi og Tyrklandi. Í framhaldinu var gengið frá samningum við kínverska fyrirtækið um smíði togaranna tveggja.

Nýjustu fréttir

Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð
Fjölmiðlafrumvarp afgreitt úr ríkisstjórn: Tók breytingum eftir samráð
Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.