Vinnslustöðin selur Þórunni Sveinsdóttur VE
20. október, 2025
Thorunn 20230724 170910 Cr
Þórunn Sveinsdóttir VE á leið á miðin. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vinnslustöðin hefur undirritað samning um sölu ísfisktogarans Þórunnar Sveinsdóttur VE-401 til Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði, með fyrirvara um forkaupsrétt Vestmannaeyjabæjar. Í kjölfar sölunnar verður um tuttugu starfsmönnum skipsins sagt upp störfum.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að salan sé liður í að lækka skuldir, en jafnframt hefur verið hætt við áform um nýsmíði botnfiskskipa. Þá hefur verið tilkynnt um lokun Leo Seafood í lok árs. Segir jafnframt að rekja megi breytingarnar til tvöföldunar veiðigjalda sem hafi haft veruleg áhrif á rekstur félagsins og framtíðaruppbyggingu í Vestmannaeyjum.

Tilkynninginn í heild sinni:

Undirritaður hefur verið samningur um sölu Þórunnar Sveinsdóttur VE-401 til Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði.   Í kjölfarið verður áhöfn skipsins sagt upp störfum, alls um 20 manns.  Samningurinn er með fyrirvara um forkaupsrétt Vestmannaeyjabæjar.

Vinnslustöðin tók við rekstri Óss og Leo Seafood á Sumardaginn fyrsta árið 2023 af fjölskyldu útgerðarmannsins Sigurjóns Óskarssonar.   Við það tækifæri sagði Sigurgeir B Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar.  ,,Við munum gera út Þórunni Sveinsdóttur áfram með áhöfninni sem þar er og engar breytingar eru heldur fyrirsjáanlegar í Leo Seafood.  Félögin sem Vinnslustöðin er nú að kaupa eru vel rekin og góð.“  Þess má geta að meðalhagnaður félaganna sex ár fyrir kaupin (2018 – 2022) nam 480 milljónum króna.

Í sjónvarpsþættinum Landanum  (2:20 mín. – 3:20 mín) þann 25. maí síðastliðinn svaraði Daði Pálsson, fyrrum framkvæmdastjóri Leo Seafood, spurningunni hvers vegna fjölskyldan hefði ákveðið að hætta útgerð og fiskvinnslu. Þar sagði hann ákvörðunina byggða á að kvótastaðan væri ekki næg til útgerðar skipsins í 12 mánuði, að þáverandi veiðigjöld kæmu í veg fyrir nýsmíði og síðast en ekki síst að fjölskyldan hafi vitað af áformum Vinnslustöðvarinnar um nýsmíði skipa annars vegar og uppbyggingar fiskvinnslunnar hins vegar.  Með sölu til Vinnslustöðvarinnar héldu allir störfum sínum sem og að skip og kvóti héldust í Eyjum.

Hvort tveggja er rétt hjá Daða.  Að Vinnslustöðin áformaði nýsmíði skipa í stað Kap og Drangavíkur, sem bæði eru komin til ára sinna og að félagið áformaði nýbyggingu botnfiskvinnslu sinnar.  Kostur viðskiptanna var að kaup á Leo Seafood frestuðu frekari fjárfestingum í botnfiskvinnslu og kaup á Þórunni Sveinsdóttur tryggði rekstraröryggi botnfiskveiða þar til ný skip væru tekin í notkun.  Öllum þessum áformum Vinnslustöðvarinnar hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur nú kollvarpað.

Síðan Vinnslustöðin keypti Leo Seafood og Ós hafa stjórnvöld lögfest liðlega tvöföldun veiðigjalda.  Í tilfelli Óss hækka veiðigjöld um liðlega 120 milljónir króna og fyrir samstæðu Vinnslustöðvarinnar um 850 milljónir króna (120 milljónir Óss innifaldar og að gefnum þeim forsendum sem voru við útreikninga þessa í vor) þegar þau verða að fullu fram komin.

Sigurgeir B Kristgeirsson segir að sala Þórunnar Sveinsdóttur sé liður í lækkun skulda félagsins, eins og kynnt var í vor. Auk þess hefur verið hætt við áform um nýsmíði botnfiskskipa.  Þá hafa áform um lokun Leo Seafood verið kynnt með uppsögn allra starfsmanna félagsins, en nokkrir fengu endurráðningu hjá Vinnslustöðinni.

„Þetta er allt hið sorglegasta mál og þvert á stefnu Vinnslustöðvarinnar, og það sem áður hefur verið sagt.  Okkar stefna var að byggja upp traust og öflugt atvinnulíf í Eyjum, samfélaginu sem og þjóðinni allri til hagsbóta.  En við förum ekki með lagasetningarvaldið og verðum að hlíta því.  Eina sem við getum gert er að bregðast við og það erum við að gera með þessum ráðstöfunum sem bitnar á saklausu fólki, samfélaginu í Eyjum og að lokum á þjóðinni allri.“

Vinnslustöðin óskar Loðnuvinnslunni til hamingju með skipakaupin. Skipið hefur reynst vel og á farsæla sögu. Það verður afhent nýjum eigendum í lok mars.

Stjórnendur og stjórn Vinnslustöðvarinnar munu í kjölfar þessarar ákvörðunar fara yfir næstu skref félagsins.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.