Vinsælasti einleikur heims
Hellisbúinn hefur þróast mikið síðan hann bankaði síðast uppá á Íslandi og er nú orðinn þrælkunnugur hinum ýmsu öppum. Í raun og veru er um nýja sýningu að ræða, þó að undirliggjandi tónn Hellisbúans sé skýr. Hellisbúinn er lang vinsælasti einleikur heims og verður hann sýndur á Háaloftinu í Vestmannaeyjum í kvöld, föstudag.
Hann hefur verið sýndur í 52 löndum, í yfir 1000 borgum og hafa tugir milljóna um allan heim séð þessa bráðfyndnu sýningu. Hellisbúinn er frásögn af lífinu sjálfu, hjónabandi, ástum og ósætti. Hellisbúinn útskýrir sína sýn á samlífið og samskipti kynjanna.
Konur og karlar, og allir hinir, sem hafa einhvern tímann verið í sambandi, eru í sambandi eða langar í samband, geta skemmt sér vel og samsamað sig við sögur Hellisbúans. Yfir 105 þúsund Íslendingar hafa hlegið, grátið, og fengið ódýra hjónabandsráðgjöf hjá Hellisbúanum.
Jóel Sæmundsson túlkar hinn gifta meðalmann að þessu sinni, en Jóel er sjálfur einn fyndnasti maður sem hann þekkir, að eigin sögn.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.