Visir.is - Þetta er ekki minningagrein

„Þetta er ekki minningagrein. Mér finnst mikilvægt að hafa þetta skemmtilegt líka,“ segir Magnús Bragason í mjög athygilsverðu viðtali á visir.is.  „Umræðuefnið er lífið með Parkinson, sem er taugahrörnunarsjúkdómur og Magnús skýrir út með því að líkja sjúkdómnum við lélegt netsamband. Þar sem heilinn hreinlega nær ekki að senda boðin til líkamans eins hratt og vel og við þekkjum frá 4G eða Wi-Fi.

„Því staðreyndin er sú að mér finnst mikilvægt að enginn skammist sín fyrir það hvernig hann er og þótt það sé svo að ég hafi lítið opnað mig um veikindin eins og núna, þá er daglegt líf hjá okkur þannig að við erum ekkert að tala um þetta dag frá degi,“ segir Magnús og bætir við:

„Satt best að segja tölum við bara lítið um þennan sjúkdóm, nema tilefni sé til. Þá helst strákarnir mínir sem eru alltaf að finna eitthvað sem peppar mig upp. Þeir eru duglegir í því. Það er svo mikilvægt að lífið sé áfram jákvætt og skemmtilegt. Við þurfum að hafa gaman. Við Adda erum til dæmis núna að undirbúa The Puffin Run hlaupið sem haldið verður 6. maí.“

Það er gaman að spjalla við Magnús. Sem er hress og skemmtilegur og oft stutt í húmorinn þótt allt það alvarlega komi líka fram í samtalinu. Við sammælumst um mikilvægi þess að halda í gleðina, brosið og jákvæðnina í viðtalinu,“ segir í viðtalinu sem er bæði áhugavert og skemmtilegt.

Mynd: Adda og Magnús með Aðalsteini, nýjum eiganda Hótels Vestmannaeyja.

Nánar á:

https://www.visir.is/g/20232399878d/lifid-med-parkison-thetta-er-ekki-minningagrein

Nýjustu fréttir

Fleiri sóttu um iðnnám en komust að í haust
Myndband sýnir varhugaverðar aðstæður við Ofanleitishamar
Styrkleikarnir snúa aftur í einfaldara formi
Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega við Ofanleitishamar
ESB setur hagsmuni Íslands ekki í fyrsta sæti
Leitað að nýju hundasvæði
Suðurland á mikið undir
Íslenskir diplómatar binda ekki Evrópudómstólinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.