Messuhald verður með óhefðbundnu sniði í Landakirkju þetta árið. Brugðið var á það ráð að taka upp tvær athafnir annars vegar messu á Aðfangadegi jóla sem sýnd verður klukkan 18:00 á Aðfangadag og svo önnur athöfn sem birt verður á annan í jólum. Séra Guðmundur Örn sóknarprestur í Landakirkju segir þetta óneitanlega hafa verið undarlegt. „En af því þetta gekk smurt og með kórinn á staðnum þá fann maður alveg þessa jólahelgi og ég vona að það skili sér alla leið til áhorfenda.“
Einnig hefur verður tekið upp á því að hafa opið hús í Landakirkju á Aðfangadag frá 14:00-17:00. „Við prestarnir verðum á svæðinu en það er engin dagskrá. Fólk getur komið og sest niður í rólegheit og kveikt á kertum. Við vildum fólki að kíkja í kirkju svona rétt fyrir jólin. Við erum auðvitað háð sóttvarnarreglum og biðjum fólk að taka mið af þeim. Ég vona að þetta verði svona rólegheita rennirí. Annars vona ég að Eyjamenn eigi gleði- og notaleg jól.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.