Vonbrigði með að Landsbankinn geti ekki gefið skýr svör

Bæjarráð Vestmannaeyja lýsir vonbrigðum með að Landsbankinn geti ekki gefið skýr svör um hvort aðrir fyrrum stofnfjáreigendur fái viðbótargreiðslu, fari dómsmál á þann veg, að bankanum beri að greiða þeim stofnfjáreigendum sem höfðuðu mál á hendur bankans viðbótargreiðslu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma þessum upplýsingum á framfæri við þá stofnfjáreigendur sem ekki eru partur af dómsmáli Vestmannaeyjabæjar, Vinnslustöðvarinnar og Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja gegn Landsbankanum.

Eins og fram hefur komið sendi bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar bankastjóra Landsbankans hf. bréf, þar sem óskað var eftir afstöðu Landsbankans til þess hvort bankinn muni greiða öðrum fyrrum stofnfjáreigendum, sem ekki eru aðilar að dómsmáli Vestmannaeyjabæjar, Vinnslustöðvarinnar og Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja gegn Landsbankanum, í samræmi við niðurstöður dómstóla fari svo að niðurstaðan verði sú að bankanum beri að greiða hærra verð fyrir stofnfjárhlutina

Í svarbréfi sem Landsbankinn sendi Vestmannaeyjabæ þann 5. febrúar sl., kemur m.a. fram að fari svo að endanleg niðurstaða dómstóla verði á þá leið að bankanum beri að greiða þeim þremur stofnfjáreigendum sem ákváðu að höfða mál gegn bankanum, mun bankinn meta fordæmisgildi slíks dóms gagnvart öðrum fyrrum stofnfjáreigendum, en vegna óvissu um endanlega niðurstöðu geti bankinn ekki gefið út frekari yfirlýsingu eða viðbrögð við slíkum dómi.
Þetta gæti haft þá þýðingu að þegar dómur liggur fyrir gætu hugsanlegar kröfur annarra fyrrum stofnfjáreigenda verið fyrndar og því þurfa þeir stofnfjáreigendur að meta hvort þeir hefji nú þegar mál gegn Landsbankanum.

Nýjustu fréttir

Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni
Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir
Vísnagátur eftir Sigurgeir
Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026
Verkefnastaðan hefur aldrei verið betri
Eyjamenn komu til baka og náðu í stig gegn ÍA
Óskuðu eftir Baldri – fengu neitun
Petar Jokanovic áfram í herbúðum ÍBV
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.