Lögregla og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru í aðgerðir við íbúðarhúsnæði á Fífilgötu í Vestmannaeyjum í gærkvöld þar sem maður vopnaður hnífi var handtekinn. Maðurinn var í kjölfarið fluttur til Reykjavíkur.
Stefán Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum, staðfesti þetta í skriflegu svari við fyrirspurn Eyjafrétta í morgun.
Haft er eftir Arndísi Báru Ingimarsdóttur, lögreglustjóra í Vestmannaeyjum, á fréttavefnum mbl.is að lögreglan í Vestmannaeyjum hafi óskað eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra vegna málsins. Hún sagði aðgerðirnar hafa gengið vel og að þeim hefði lokið laust eftir miðnætti. Þá sagði hún jafnframt að ekki væri vitað til þess að neinn hefði hlotið líkamlega áverka.
Málið kom fyrst fram í umfjöllun fjölmiðla í gærkvöld þar sem greint var frá því að sérsveit ríkislögreglustjóra hefði verið kölluð til Vestmannaeyja vegna manns sem væri vopnaður hnífi. Aðgerðum lauk með handtöku án þess að til alvarlegra átaka kæmi eftir því sem næst verður komist.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.