Vorleiðangur hafinn
Bjarni Sæmundsson, mynd: ruv.is

Lagt var af stað í árlegan vorleiðangur Hafrannsóknastofnunar þann 17. maí á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Leiðangurinn er liður í langtímavöktun á ástandi sjávar, næringarefnum, gróðri og átu á hafsvæðinu við Ísland. Ársferðisrannsóknir á þessu sviði hafa farið fram maí/júní í um 60 ár.

Ásamt því að kanna ástandið á föstum sniðum útfrá landinu eru gerðar mælingar með síritandi mælitækjum á siglingaleið skipsins. Magn og útbreiðsla ljósátu er mæld með bergmálstækni og samliða því eru ljósátusýni skoðuð. Að auki verður safnað sýnum fyrir Geislavarnir ríkisins vegna vöktunar á magni geislavirkra efna í sjó.

Einnig verða sett í sjóinn rekdufl, sem mæla umhverfisþætti, fyrir erlenda samstarfsaðila. Áætlað er að leiðangurinn vari í 15 daga og fylgjast má með gangi hans á skip.hafro.is

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.