Vorskipið kemur! á Eyrarbakka og Stokkseyri 18.-20. maí

�?ess vegna er mikilvægt að allir sem ætla að hafa eitthvað fyrir stafni helgina, 18.-20. maí, í nafni Vorskipsins, skrái viðburð sinn á eyrarbakki.is. �?ar er tengill merktur “Vorskipið kemur!” sem opnar einfaldan skráningarglugga. �?ví fyrr sem viðburður er skráður, því betra. Dagskrá Vorskipsins verður síðan sett saman og dreift með Glugganum, í vikunni fyrir Vorskip.

�?eir sem búa á Selfossi, en vilja taka þátt í þessu með okkur á ströndinni, er bent á að hafa samband við undirritaðan í fridrike@simnet.is, svo útvega megi húsnæði eða aðstöðu fyrir það sem viðkomandi hefur uppá að bjóða.

Undirritaður hefur tekið að sér að leita eftir styrkjum til hátíðarinnar og mun á næstu dögum hafa samband við fyrirtæki í Árborg og leita eftir stuðningi, en Vorskipið kemur! er með reikning í Landsbankanum á Selfossi: 0152-05-266190; Kt. 040362-3479.
Landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, hefur af mikilli vinsemd veitt Vorskipinu styrk upp á kr. 200.000, sem mun nýtast til dagskrárgerðar og auglýsinga fyrir Vorskipið. �?etta framtak ráðherra er mikil hvatning, sem ég vona að fyrirtæki í Árborg geti tekið sér til fyrirmyndar.

Vertu með þegar Vorskipið kemur! og skráðu þig strax á eyrarbakki.is.

Höfundur skrifar fyrir hönd áhafnarinnar á Vorskipinu.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Hildur Rún frá Eyjalistanum
ÍBV á útivelli gegn Val
Aldan enn of há fyrir Álfsnes
Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Vel heppnaður fundur
Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.