Yfirlýsing frá þjóðhátíðarnefnd varðandi hvítu tjöldin

Við umsóknir um lóðir fyrir hvít tjöld í dalnum urðu þau leiðu mistök að tekið var út af kortareikningum umsækjanda.  Þeir sem lentu í því að gjaldfært var af kortum þeirra fyrir lóðum munu fá það bakfært inn á kortin sín eftir hádegi í dag og ný heimild verður tekin frá.   SMS verður sent þessu til staðfestingar þ.e að búið sé að taka frá nýja heimild. Ekki þarf því að greiða fyrir lóðirnar um næstu mánaðarmót. Biðjum við þá sem lentu í þessu að fylgjast með kortayfirlitinu sínu á mánudaginn og láta okkur vita á netfangið info@dalurinn.is ef þetta hefur ekki gengið eftir.

Við vonumst til að nú verði þetta rétt gert hjá okkur og að eingöngu verði tekin frá heimild en ekki tekið út af kortunum eins og gerðist í vikunni.

Þeir sem bóka lóðir núna í kerfinu munu ekki lenda í þessu þar sem búið er að lagfæra kerfið.

Við þökkum öllum þeim sem hafa haft samband við okkur vegna þessa máls,vonumst til að þetta muni ekki valda meiri óþægindum og biðjumst afsökunar á þessum mistökum.

Fyrir hönd Þjóðhátíðarnefndar

Dóra Björk og Jónas

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.