100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað

Eins og áður hefur komið fram verða 100 ár liðin frá stofnun Taflfélags Vestmannaeyja laugardaginn 29. ágúst.

Af því tilefni er gefið út sérstakt átta síðna afmælisblað í stóru broti sem fór í aldreifingu í Vestmannaeyjum í dag.

Afmælisnefnd Taflfélagsins og ritnefnd blaðsins skipa Arnar Sigurmundsson, ábyrgðarmaður, Karl Gauti Hjaltason og Hallgrímur Steinsson, formaður Taflfélags Vestmannaeyja. Eyjasýn ehf. gefur blaðið út fyrir hönd félagsins og Eyjadreifing annast dreifingu þess.

Afmælisblaðið verður jafnframt aðgengilegt öllum í opinni vefútgáfu á Eyjafréttum til loka september.

Tvö afmælismót um helgina

Um helgina verða haldin tvö mót í tilefni 100 ára afmælis Taflfélags Vestmannaeyja. Mótin fara fram á opna svæðinu í Þekkingarsetrinu að Ægisgötu 2, 2. hæð.

Atskákmót verður haldið laugardaginn 29. ágúst kl. 12.00–18.00. Tímamörk eru 15 mínútur að viðbættum fimm sekúndum fyrir hvern leik.

Hraðskákmót verður haldið sunnudaginn 30. ágúst kl. 13.00–16.00. Tímamörk eru fimm mínútur að viðbættum fimm sekúndum fyrir hvern leik.

Tímamörkin eru heldur rýmri en almennt gerist í atskák og hraðskák á skákmótum.

Keppendur koma bæði úr Vestmannaeyjum og víðs vegar að af landinu. Öllum er heimil þátttaka og ekkert þátttökugjald er innheimt. Áhorfendum er einnig velkomið að fylgjast með mótunum á keppnisstað báða dagana.

Skráning fer fram á skak.is eða í síma 822-0351, segir í tilkynningu frá Taflfélagi Vestmannaeyja.

Hér má lesa blaðið.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.