Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent

Alls hafa 236.536 farþegar ferðast með Herjólfi það sem af er ári. Það er 14,3 prósentum færra en á sama tíma í fyrra. Þetta kom fram þegar Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., fór yfir farþegatölur og rekstur félagsins á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja. Rekstur Herjólfs er undir áætlun, sem einkum er rakið til þess hve […]