Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Screenshot
Sigurður Sævar sýnir ný verk í Magnahúsinu. Ljósmynd/aðsend.

Myndlistarmaðurinn Sigurður Sævar Magnússon opnar einkasýningu í Magnahúsinu við Strandveg 76 í Vestmannaeyjum í dag, fimmtudag, kl. 17. Á sýningunni verða ný olíu- og vatnslitaverk sem listamaðurinn hefur málað á þessu ári og sækja innblástur til Vestmannaeyja.

Fyrsta einkasýning ársins

Sigurður Sævar útskrifaðist frá Konunglegu listaakademíunni í Haag sumarið 2023 og hefur frá útskrift starfað og haldið sýningar bæði á Íslandi og í Hollandi. Hann var meðal annars valinn til þátttöku í Best of Graduates 2023 hjá hinu virta Ron Mandos-galleríi í Amsterdam.

Í desember síðastliðnum stóð hann að tveimur stórum einkasýningum samtímis, annarri í gamla Landsbankahúsinu við Austurstræti og hinni á heimili hollenskra listasafnara í Wassenaar í Hollandi. Sýningin í Magnahúsinu verður fyrsta einkasýning hans á þessu ári.

Góðar minningar frá Eyjum

„Þegar ég fór að huga að næstu einkasýningu áttaði ég mig á því að ég hafði aðeins haldið einkasýningar á höfuðborgarsvæðinu og erlendis. Ég hafði aldrei haldið sýningu á landsbyggðinni og fannst ég þurfa að breyta því. Þá komu Vestmannaeyjar strax upp í hugann. Ég á góðar minningar frá Eyjum, en ég kom þangað nokkrum sinnum sem strákur til að taka þátt í sundmótum,“ segir Sigurður Sævar.

„Mér er minnisstætt þegar ég gekk um bæinn með vini mínum í vorsólinni eftir góða sigra í sundlauginni og lýsti því yfir að ég gæti hugsað mér að verða gamall maður í Eyjum,“ segir hann.

Nú, mörgum árum síðar, snýr Sigurður Sævar aftur til Vestmannaeyja – að þessu sinni ekki sem sundkappi heldur listamaður með pensla og listaverk í farteskinu. Verkin á sýningunni sækja öll innblástur til Eyjanna.

Vestmannaeyjar eru í verkum Sigurðar Sævars.

Nýjustu fréttir

Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.