Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Myndin er tekin í síðasta mánuði um borð í Herjólfi. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Alls hafa 236.536 farþegar ferðast með Herjólfi það sem af er ári. Það er 14,3 prósentum færra en á sama tíma í fyrra.

Þetta kom fram þegar Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., fór yfir farþegatölur og rekstur félagsins á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja.

Rekstur Herjólfs er undir áætlun, sem einkum er rakið til þess hve erfiðar siglingar til Landeyjahafnar voru fram yfir miðjan maí.

Vilja Herjólf III sem varaskip í Eyjum

Á fundinum var jafnframt rætt um stöðu Herjólfs III og fyrirkomulag samgangna næsta vetur. Fulltrúar Vestmannaeyjabæjar funduðu 18. ágúst með Bergþóru Þorkelsdóttur vegamálastjóra og Hilmari Stefánssyni, forstöðumanni almenningssamgangna, um málið.

Vestmannaeyjabær lagði áherslu á að Herjólfur III yrði tiltækur sem varaskip í Vestmannaeyjum næsta vetur til að tryggja öryggi og fyrirsjáanleika í samgöngum milli lands og Eyja.

Af hálfu Vegagerðarinnar kom fram að boðaður væri verulegur niðurskurður á fjárveitingum til almenningssamgangna og að skortur á fjármagni stæði í vegi fyrir rekstri tveggja varaskipa. Engin endanleg ákvörðun hefði þó verið tekin um framtíðarnýtingu Herjólfs III.

Niðurstaðan var að hefja formlegt samtal milli Herjólfs ohf., Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar um aðkomu Herjólfs að umsjón og mönnun Herjólfs III næsta vetur.

„Herjólfur er okkar þjóðvegur“

Bæjarráð segir óásættanlegt að samgöngur við Vestmannaeyjar séu flokkaðar sem almenningssamgöngur og sæti verulegum niðurskurði á komandi árum.

„Herjólfur er okkar þjóðvegur,“ segir í bókun ráðsins. Þar kemur einnig fram að slík áform samræmist illa yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar um mikilvægi bættra samgangna og uppbyggingar innviða um land allt.

Bæjarráð skorar á ríkisstjórn Íslands og innviðaráðherra að tryggja að samgöngur við Vestmannaeyjar verði ekki skertar. Jafnframt krefst ráðið þess að tryggt verði nægilegt fjármagn svo Herjólfur III geti verið til taks í Vestmannaeyjum næsta vetur sem varaskip og öryggisnet fyrir samfélagið.

Nýjustu fréttir

Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Myndband: Athafnasvæðin austur á Heimaey úr lofti
Jóhann Ingi tekur sæti Sæunnar til áramóta
Vaxandi lestur og fleiri áskrifendur hjá Eyjafréttum
Tölum um heilabilun – fræðsla í Vestmannaeyjum
Starfshópur mótar nýja ferjuáætlun
Haustið farið af stað hjá Fimleikafélaginu Rán
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.