Ísfélag skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland
23. nóvember, 2023

Birting lýsingar og hlutafjárútboð Ísfélags hf. Ísfélag, elsta starfandi hlutafélag landsins, hefur birt lýsingu vegna almenns útboðs og fyrirhugaðrar skráningar á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Félagið er leiðandi í veiðum og vinnslu gæðaafurða úr uppsjávar- og bolfiski. Skráning hlutabréfa Ísfélags á Aðalmarkað gerir áhugasömum fjárfestum kleift að taka þátt í vexti félagsins og styðja það til frekari sóknar. Helstu upplýsingar um almennt hlutafjárútboð og fyrirhugaða töku til viðskipta á Aðalmarkaði.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

• Boðnir verða til sölu í almennu útboði 118.923.851 þegar útgefnir hlutir í félaginu, sem
jafngildir 14,53% af heildarhlutafé félagsins.
• Almenna útboðið skiptist í tvær áskriftarbækur, áskriftarbók A þar sem 23.784.770 hlutir
verða boðnir til sölu á föstu verði 135 kr. á hlut og áskriftarbók B þar sem 95.139.081 hlutir
verða boðnir til sölu á lágmarksverði 135 kr. á hlut.
• Áskriftartímabil hefst kl. 10:00 að íslenskum tíma þann 23. nóvember og stendur til kl. 14:00 þann 1. desember 2023.

• Nánari upplýsingar um útboðið og skilmála sem um það gilda má finna í lýsingu Ísfélags, sem er staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og birt í dag, 22. nóvember 2023.
• Sótt hefur verið um að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq
Iceland. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur á Aðalmarkaði verði þann 8. desember nk., að því gefnu að umsókn félagsins verði samþykkt af Nasdaq Iceland fyrir þann tíma.

Efla grundvöll fyrir frekari vöxt

Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélags:
„Skráning Ísfélags á Aðalmarkað hefur það að markmiði að efla grundvöll fyrir frekari vöxt
fyrirtækisins. Við teljum að fjölbreyttari hópur fjárfesta styrki framtíðarsýn og rekstur félagsins til lengri tíma. Saman getum við sótt fram og nýtt fjölmörg tækifæri sem við stöndum frammi fyrir. Fjölbreytt og góð samsetning á aflaheimildum mun auka stöðugleika í veiðum og vinnslu og ábata í rekstri. Traust fjárhagsstaða Ísfélags skapar svigrúm til sóknar og styður við spennandi tækifæri í dóttur- og hlutdeildarfélögum.“

Um Ísfélag hf.
• Ísfélag er elsta starfandi hlutafélag landsins, stofnað 1. desember 1901.
• Ísfélag Vestmannaeyja og Rammi í Fjallabyggð sameinuðust fyrr á árinu og var nafni félagins þá breytt í Ísfélag.
• Starfsemi félagsins er á fjórum stöðum: Í Vestmannaeyjum, á Siglufirði, í Þorlákshöfn og á Þórshöfn á Langanesi. Alls eru hjá félaginu 374 stöðugildi til sjós og lands.
• Félagið gerir út fjögur uppsjávarskip, einn frystitogara, þrjú bolfiskskip og einn krókabát.
• Helstu afurðir félagsins eru frosnar uppsjávarafurðir, fiskimjöl og lýsi, rækju og frystar og
ferskar bolfiskafurðir.

• Töluvert hefur verið fjárfest í skipum og landvinnslu í þeim tilgangi að auka framlegð,
afkastagetu og hagkvæmni. Dæmi um nýlegar fjárfestingar eru hrognatankar og
hrognavinnsluhús í Vestmannaeyjum, tvö uppsjávarveiðiskip, frysitogari og aukin afkastageta í fiskvinnslum félagsins. Þá hefur félagið ísfisktogarann Sigurbjörgu í smíðum, sem tekinn verður í notkun árið 2024 og leysir af hólmi þrjú eldri skip.
• Virðing fyrir umhverfinu og lífríki sjávar er grundvöllur starfsemi Ísfélags og áhersla er lögð á góða umgengni um auðlindir sjávar og ábyrgar fiskveiðar svo komandi kynslóðir geti notið þeirra til framtíðar.

• EBITDA framlegð Ísfélags hefur að jafnaði verið hærri en EBITDA framlegð sjávarútvegsins í heild. Rekstrartekjur sameinaðs félags námu um 252 milljónum USD árið 2022 og EBITDA 95 milljónum USD. Afkomuspá Ísfélags fyrir 2023 gerir ráð fyrir EBITDA upp á 77 – 83 milljónir USD. Samlegðaráhrif af sameiningu félaganna tveggja er talin skila um 5 milljónum USD í rekstrarlegum ábata árið 2024.
• Eiginfjárhlutfall félagsins er 62% sem myndar sterkan grunn til arðgreiðslna og frekari
fjárfestinga.
• Félagið heldur á 8,9% af aflaheimildum en hámarkið, skv. lögum, er 12% og því eru til staðar tækifæri til vaxtar.
• Stjórn félagsins hefur samþykkt arðgreiðslustefnu sem segir að arður skuli nema að lágmarki 30% hagnaðar næstliðins rekstrarárs, þó með tilliti til þess að eiginfjárhlutfall fari ekki undir 50% við greiðslu arðs.
• Spennandi vaxtartækifæri eru til staðar hjá dóttur- og hlutdeildarfélögum Ísfélags:
o Ísfélag á 16,2% óbeinan eignarhlut í Ice Fish Farm sem stundar laxeldi og stefnir á 30
þúsund tonna árlega framleiðslu.
o Félagið á allt hlutafé í Primex ehf. sem framleiðir einkaleyfavarið hágæða kítósan úr
rækjuskel. Félagið framleiðir m.a. vörur undir nafninu ChitoCare Medical sem m.a.
hafa sýnt græðandi virkni á bæði gömul og ný sár af völdum sykursýki í rannsóknum.
ChitoCare hefur hlotið lækningaleyfi í Evrópu og er unnið að leyfi í Bandaríkjunum.
o Ísfélag heldur á 33% hlut í Pelagic Greenland sem gerir út öflugt uppsjávarfrystiskip
frá Grænlandi. Afli skipsins var 25 þúsund tonn árið 2022, þar af um helmingur loðna.
Aflinn í ár stefnir í 27 þúsund tonn.
o Ein af fjárfestingum Ísfélags er 7,5% eignarhlutur í Vaxa Technologies sem framleiðir
smáþörunga með koltvísýringi frá borholum OR, hitastýrðu vatni og ljósi. Þörungarnir
eru nýttir í ýmsar afurðir svo sem fæðubótarefni, fóður fyrir klak seiðastöðva,
litarefni og prótein.

• Eftir töku hlutabréfa Ísfélags til viðskipta verður um þriðjungur aflaheimilda í íslenskri
fiskveiðilögsögu í eigu hlutafélaga sem skráð eru á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar Arion banki hf., Íslandsbanki hf. og Landsbankinn hf. hafa umsjón með almenna útboðinu og töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

Nánari upplýsingar um Ísfélag, hlutabréf félagsins og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins sem dagsett er 22. nóvember 2023 auk fjárfestakynningar sem birt hefur verið á
www.isfelag.is/fjarfestar.
Upplýsingar og tæknilega aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá eftirfarandi aðilum dagana 23. nóvember til 1. desember 2023:
• Verðbréfaráðgjöf Arion banka í síma 444-7000 og í tölvupósti isfelag@arionbanki.is. Frekari upplýsingar: www.arionbanki.is/isfelag
• Verðbréfaráðgjöf Íslandsbanka í síma 440-4000 og í tölvupósti isfelag@islandsbanki.is.
Frekari upplýsingar: www.islandsbanki.is/isfelag
• Verðbréfaþjónusta Landsbankans í síma 410-4040 og í tölvupósti isfelag@landsbankinn.is.
Frekari upplýsingar: www.landsbankinn.is/isfelag
Vestmannaeyjum, 22. nóvember 2023.

Mynd: Sigurður VE 15, öflugasta uppsjávarskip Ísfélagsins.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 17 Tbl EF Min
17. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst