2. flokkur spilar mikilvægan leik
Á morgun fer fram stórleikur hjá 2. flokki félagsins í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. ÍBV hefur ekki tapað heimaleik í deildinni á allri leiktíðinni en þurfa nú á ykkur stuðningi að halda. 3. flokkur keppir leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins á þriðjudag en sá leikur átti einnig að fara fram á morgun.
2. flokkur tekur á móti Haukum klukkan 13:00 en Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar. ÍBV hefur tvívegis spilað við Hauka á heimavelli á tímabilinu og í eitt skipti á útivelli. ÍBV hefur sigrað alla leikina en í úrslitakeppninni getur allt gerst.
3. flokkur fær KA í heimsókn á þriðjudaginn. ÍBV hefur tvívegis spilað við KA á leiktíðinni en annar leikurinn var í forkeppninni og hinn í undanúrslitum bikarsins. ÍBV sigraði báða leikina með einu marki en ljóst er að leikurinn á morgun verður gríðarlega spennandi.
Við hvetjum alla til þess að mæta og styðja við bakið á strákunum, sem eiga það svo sannarlega skilið eftir flott tímabil hingað til.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.