Fylgni milli pysju­­þyngdar og Kötlu

Gísli hefur í ellefu ár vigtað lundapysjur þegar þær birtast á haustin í Vestmannaeyjum. Hann hefur sett niðurstöður sínar í súlurit og borið saman við upplýsingar frá Veðurstofu Íslands.

Hann vinnur út frá tilgátunni um að fylgni sé milli meðal­þyngdar pysjanna og óróa í Kötlu í Mýrdalsjökli. „Það virðist vera sem meðalþyngd pysjanna minnki þegar jarðskjálftaórói er í vestanverðum Mýrdals­jökli, en aukist svo aftur árið eftir að óróinn minnkar,” segir hann.

Rannsóknir Hafrannsóknastofnunar Íslands sýni að lundinn sunnanlands nærist nær eingöngu á marsílum.

„Árið 2002 var ágætis ár hjá lundanum en 2003 til 2005 sígur stöðugt á ógæfuhliðina og pysjurnar verða ræfils­legar. Þegar ég fór að grafast fyrir um orsakir sá ég hjá Veður­stofunni að það var stöðugur órói í Mýrdalsjökli á þessum tíma,” segir Gísli.

 
Árið 2005 hafi lundi í Ingólfshöfða verið nokkuð digur en afar magur í Eyjum og í Vík í Mýrdal. „Síðan minnkar óróinn árið 2006 og þá fara pysjurnar að þyngjast. Í ár eru þær mjög vel haldnar,” segir hann.
Hugsanleg skýring, segir Gísli og undirstrikar að þetta sé einungis tilgáta, gæti verið sú að í meiri virkni opnist sprungur á hafsbotni og koltvísýringur komi upp í gegnum þær.

„Koltvísýringurinn breytist svo í kolsýru í vatninu. Þar sem egg marsílisins eru botnlæg verða skilyrði til klaks mjög slæm og sílin yfirgefa líklega svæðið,” segir Gísli. Þar með verði fæðuframboð lítið í sjónum.
Gísli bendir á að fleiri stofnar sæki í sílin en lundar. Stofnanir eins og Hafrannsóknastofnun mættu því taka málið til rannsóknar.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.