Hnefaleikafélagið fær aðstöðu í Félagsheimilinu

Hnefaleikafélag Vestmannaeyja hefur fengið framtíðar húsnæði undir æfingar sínar en félagið hefur verið á “götunni” undanfarna mánuði eftir að það missti síðasta æfingarhúsnæði. Hnefaleikafélagið hefur nú fengið til afnota aðstöðu á efstu hæð í Félagsheimilinu.

Hnefaleikafélagið er ungt en öflugt félag og mun þessi nýja aðstaða þeirra efla félagið til muna. Félagið fékk að gjöf frá Guðmundi Arasyni og fjölskyldu æfingahring og annan útbúnað til iðkunar á hnefaleikum en Guðmundur var búsettur í Vestmannaeyjum sem krakki. Guðmundur var Íslandsmeistari í hnefaleikum 1943 og keppti meðal annars við margfaldan ólympíumeistara í hnefaleikum.

Sæþór Ólafur Pétursson varð Íslandsmeistari í hnefaleikum á síðasta ári og varð hann valinn Íþróttamaður ársins í Vestmannaeyjum 2006. Þessi árangur Sæþór er frábær þegar litið er á þá umgjörð og aðstöðu sem hnefaleikafélagið hafði til umráða á síðasta ári.

Æfingar í hjá hnefaleikafélaginu verða alla daga nema föstudaga frá 17:00 – 20:00 og eru allir hjartanlega velkomnir, bæði stelpur og strákar.

Nýjustu fréttir

ÍBV kom til baka og vann frábæran sigur gegn Haukum
Íslandsmótið í Boccia hófst í Eyjum í dag
Hvar er grafskipið? Hvar eru upplýsingarnar?
„Þjóðvegurinn okkar er brotinn“
Elmar kom að 15 mörkum fyrir Nordhorn-Lingen
Náðu fjórum tímum í dýpkun í gær – uppfært
Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum
ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.