Yfir 100 Drullusokkar í Eyjum

Mótorhjólaklúbburinn Drullusokkarnir í Vestmannaeyjum hélt aðalfund sinn nýlega með miklum stæl en klúbburinn hefur nú 124 meðlimi innan sinna raða sem telja verður einhverskonar Íslandsmet miðað við höfðatölu eyjaskeggja.Tryggvi Sigurðsson formaður klúbbsins segir í samtali við Vísi að þar að auki séu þeir með útibú á “Norðureyjunni” eins og hann kallar fastalandið.

“Það eru tvö skilyrði fyrir því að gerast meðlimur í Drullusokkunum,” segir Tryggvi. “Í fyrsta lagi þarf viðkomandi að eiga mótorhjól og í öðru lagi verður hann að hafa átt heima í Vestmannaeyjum einhvern hluta æfinnar.”

Það liggur ljóst fyrir að hluti meðlima býr nú á “Norðureyjunni” en Tryggvi segir að sérstakt embætti innan klúbbsins, Íslandsjarlinn, sjá um málefni þeirra. Núverandi Íslandsjarl er Steini Tótu. Hinn þekkti Vestmannaeyingur Árni Johnsen er ekki meðlimur sem stendur þar sem nokkuð er síðan hann seldi mótorhjól sitt. “Ef Árni kaupir hjól á ný gerum við hann að heiðursfélaga um leið,” segir Tryggvi. “Árni er okkar maður í Eyjum.”

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.