Asbeströr í óreiðu austur á Hrauni
Þarna liggja rörin fyrir hunda og manna fótum. Eru því miður ekki eina dæmið um hirðuleysi og illa umgengni á Nýja hrauninu.

Eyjafréttir fengu senda mynd sem sýnir gömul asbeströr liggja í óreiðu austur á Hrauni. Rörin blasa við þeim sem fara um hraunið og þykja ekki til fyrirmyndar.

„Ég fór og skoðaði þetta áðan og verð að viðurkenna að þetta er ekki til fyrirmyndar,“ sagði Kjartan Vídó hjá Vestmannaeyjabæ eftir að hann fékk myndina í hendur.

„Þetta eru gömul rör frá hraunhitaveitunni sem innihalda asbest að einhverju leyti. Ég er búinn að setja Dagnýju Hauksdóttur, umhverfisfulltrúa bæjarins í málið og við þurfum að fá leyfi frá heilbrigðiseftirlitinu til að urða þau. Sýni verður tekið úr röri á morgun og sent í greiningu. Þegar niðurstöðurnar liggja fyrir getum við hafist handa við að fjarlægja þessi rör og önnur sem kunna að vera á svæðinu,“ sagði Kjartan.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.