Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar

Formaður utanríkismálanefndar, Pawel Bartozsek, hefur undanfarið haldið því fram á samfélagsmiðlum að aðild Íslands að ESB gæti leitt til verulegrar lækkunar matvælaverðs. Hefur hann gengið svo langt að halda því fram að verð á matvörum og skyndibitum, svo sem tilteknum vefjum á veitingastöðum, gæti lækkað um allt að 25%. Sem hagfræðingur með áralangan áhuga á […]

Rauðáta gæti orðið ný atvinnugrein

Lokaskýrsla umfangsmikils rannsóknar- og nýsköpunarverkefnis um veiðar og vinnslu á rauðátu við Vestmannaeyjar hefur verið birt. Niðurstöðurnar benda til þess að rauðáta geti orðið grunnur að nýrri og sjálfbærri atvinnugrein hér við land. Hörður Baldvinsson, verkefnisstjóri og framkvæmdarstjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja, segir niðurstöðurnar afar jákvæðar. Hver er helsta niðurstaða verkefnisins? „Helsta niðurstaðan er sú að allar […]

Lögreglan minnir á mikilvægi umferðaröryggis á Orkumótinu

Á morgun, fimmtudag hefst Orkumótið, en búist er við yfir 1.000 þátttakendum auk fjölmargra gesta. Af því tilefni hvetja lögregla og skipuleggjendur mótsins vegfarendur til að sýna aðgát í umferðinni, sérstaklega í nágrenni knattspyrnuvallanna þar sem búast má við miklu mannlífi og aukinni umferð. Sérstaklega er vakin athygli á Hamarsvegi sem er aðal aðkomuleið að […]

Fiskibátur vélarvana við Vestmannaeyjar

Björgunarfélag Vestmannaeyja var ræst út klukkan 10 í morgun þegar fiskibáturinn Veiga VE varð vélarvana suðvestan við Hellisey. Björgunarbáturinn Þór hélt þegar af stað úr höfn og kom bátnum til aðstoðar. Veiga VE var síðan tekin í tog og gekk aðgerðin vel fyrir sig. Bátarnir komu til hafnar um tveimur og hálfri klukkustund síðar þar […]

Orkumótið hefst á morgun

Hið árlega Orkumót í fótbolta í Vestmannaeyjum hefst á morgun, fimmtudag, og stendur mótið til laugardags. Orkumótið hefur verið haldið árlega frá árinu 1984 og er það 6. flokkur karla, eldra ár, sem keppir á mótinu. Búist er við að tæplega 1.100 keppendur, þjálfarar og fararstjórar leggi leið sína til Eyja.  Á morgun hefjast fyrstu […]

Asbeströr í óreiðu austur á Hrauni

Eyjafréttir fengu senda mynd sem sýnir gömul asbeströr liggja í óreiðu austur á Hrauni. Rörin blasa við þeim sem fara um hraunið og þykja ekki til fyrirmyndar. „Ég fór og skoðaði þetta áðan og verð að viðurkenna að þetta er ekki til fyrirmyndar,“ sagði Kjartan Vídó hjá Vestmannaeyjabæ eftir að hann fékk myndina í hendur. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.