Orkumótið hefst á morgun
Frá Orkumótinu 2025. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Hið árlega Orkumót í fótbolta í Vestmannaeyjum hefst á morgun, fimmtudag, og stendur mótið til laugardags. Orkumótið hefur verið haldið árlega frá árinu 1984 og er það 6. flokkur karla, eldra ár, sem keppir á mótinu. Búist er við að tæplega 1.100 keppendur, þjálfarar og fararstjórar leggi leið sína til Eyja. 

Á morgun hefjast fyrstu leikir kl. 08:20 og síðustu leikirnir kl. 17:00. Leikið verður á fjórum völlum, á Hásteinsvelli, Týsvelli og Þórsvelli og í Herjólfshöll. 

Glæsileg dagskrá er framundan hjá gestum mótsins en búist er við miklum mannfjölda í bænum á meðan á mótinu stendur. Á fimmtudagskvöldið verður setning mótsins á Hásteinsvelli, sem hefst með skrúðgöngu frá Barnaskólanum. Á föstudagskvöldið verður landsleikur Orkumótsins, leikur milli Landsliðs og Pressuliðs, leikinn á Hásteinsvelli og þar á eftir er kvöldvaka í Íþróttahúsinu. Á laugardeginum fara fram úrslitaleikir og mótinu lýkur svo með grillveislu við Týsheimilið.

Hægt er að sjá dagskrá mótsins hér:

Play Video

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.