Fiskibátur vélarvana við Vestmannaeyjar
Björgunarbáturinn Þór kom fiskibátnum Veigu VE til aðstoðar eftir að báturinn varð vélarvana suðvestan við Hellisey í morgun. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Björgunarfélag Vestmannaeyja var ræst út klukkan 10 í morgun þegar fiskibáturinn Veiga VE varð vélarvana suðvestan við Hellisey.

Björgunarbáturinn Þór hélt þegar af stað úr höfn og kom bátnum til aðstoðar. Veiga VE var síðan tekin í tog og gekk aðgerðin vel fyrir sig. Bátarnir komu til hafnar um tveimur og hálfri klukkustund síðar þar sem þeir lögðust að bryggju án frekari vandræða.

Á leið til hafnar í Eyjum. Ljósmynd/aðsend.

Nýjustu fréttir

Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.