Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur tekið til umræðu útbreiðslu ágengra gróðurtegunda í Eyjum, einkum lúpínu og kerfils, og vill grípa til aðgerða til að vernda viðkvæm vistkerfi og jarðminjar.
Fram kemur í bókun ráðsins að töluverð útbreiðsla hafi orðið bæði í Gamlahrauni og Eldfellshrauni. Undanfarin ár hafi verið reynt að takmarka útbreiðslu lúpínu í Gamla hrauni þar sem svæðið einkennist af mosagrónu hrauni og lynggróðri.
Á Eldfellshrauni hafi lúpínan hins vegar víða nýst vel til landgræðslu. Hún hafi þó einnig dreift sér inn á svæði þar sem verndargildi sé mikið, meðal annars á mosagróin hraun og jarðminjar sem skráðar eru á náttúruminjaskrá, þar á meðal við Páskahraun.
Í bókuninni kemur fram að lúpína víki í sumum tilvikum fyrir öðrum gróðurtegundum, en að kerfill virðist nú vera að ná sér á strik og dreifast hratt um svæðið.
Ráðið telur mikilvægt að hefta frekari útbreiðslu ágengra gróðurtegunda í Vestmannaeyjum og vernda bæði vistkerfi og jarðminjar. Skipulags- og umhverfisfulltrúa hefur verið falið að vinna tillögur að aðgerðum til skemmri og lengri tíma sem miða að því að takmarka útbreiðsluna.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.