Úti er ævintýri

Við hjónin ákváðum að fara í brúðkaupsferð til Ítalíu árið 2017. Í skipulagningu náði ég að sannfæra hana um að ég mætti alfarið bóka gistingarnar og var planið mitt að bóka ekkert hótel, heldur einungis AirBnb gistingar og búa til ævintýri. Konan mína var ekkert hrifin. Hún gerði sitt allra besta til að ýta mér […]
Áhyggjur af útbreiðslu lúpínu og kerfils

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur tekið til umræðu útbreiðslu ágengra gróðurtegunda í Eyjum, einkum lúpínu og kerfils, og vill grípa til aðgerða til að vernda viðkvæm vistkerfi og jarðminjar. Fram kemur í bókun ráðsins að töluverð útbreiðsla hafi orðið bæði í Gamlahrauni og Eldfellshrauni. Undanfarin ár hafi verið reynt að takmarka útbreiðslu lúpínu í Gamla […]
Baldur áfram varaskip Herjólfs vegna tafa á viðgerð

Vegna tafa á viðgerð á annarri vél Herjólfs mun ferjan Baldur áfram gegna hlutverki varaskips og sigla til og frá Vestmannaeyjum til að tryggja öruggar og órofnar samgöngur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu. Tafirnar eru vegna seinkunar á afhendingu varahluta til verkstæðis í Hollandi þar sem viðgerð fer fram. Á meðan Herjólfur er […]
Alexandra Ósk, Ásdís Halla og Birna María eru mættar til Kína með u-20 ára landsliðinu

Eyjastelpurnar og leikmenn ÍBV í handbolta, Alexandra Ósk Viktorsdóttir, Ásdís Halla Hjarðar og Birna María Unnarsdóttir eru mættar til Kína til að taka þátt í Heimsmeistaramóti u-20 kvenna í handbolta. Er þetta í annað sinn sem þessi árgangur tekur þátt í heimsmeistaramóti sem fer fram í Kína. Ferðalagið til Kína var langt en stelpurnar flugu […]
Laxey sækir 6,7 milljarða í nýtt hlutafé

Laxey hefur lokið 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði til fjármögnunar næsta áfanga í uppbyggingu félagsins í Vestmannaeyjum. Eftirspurn eftir hlutum í útboðinu var verulega umfram framboð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Upphaflega var stefnt að því að sækja 5,8 milljarða króna í nýtt hlutafé. Langstærstur hluti fjármögnunarinnar kom frá núverandi hluthöfum félagsins, en að […]
Myndband frá Haugasvæðinu: Vinnan komin á fullt

Vinna við þriðja áfanga grjótleitar á Haugasvæðinu er komin á fullt skrið og hefur svæðið nú tekið á sig mynd virks framkvæmdasvæðis, líkt og fjallað var um hér á vef Eyjafrétta um helgina. Í þessu myndbandi, sem Halldór B. Halldórsson tók upp í gær, má sjá hvernig framkvæmdirnar standa nú og umfang þeirrar vinnu sem […]