Vegna tafa á viðgerð á annarri vél Herjólfs mun ferjan Baldur áfram gegna hlutverki varaskips og sigla til og frá Vestmannaeyjum til að tryggja öruggar og órofnar samgöngur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.
Tafirnar eru vegna seinkunar á afhendingu varahluta til verkstæðis í Hollandi þar sem viðgerð fer fram. Á meðan Herjólfur er aðeins á annarri vélinni er skipið viðkvæmt fyrir veðri og getur átt erfitt með að sigla til Landeyjahafnar þegar ölduhæð fer yfir tvo metra eða vindhraði yfir 12 metra á sekúndu.
Vegagerðin hefur jafnframt samið um að farþegabáturinn Særún haldi áfram siglingum til Flateyjar til að tryggja þjónustu við íbúa og atvinnulíf á svæðinu.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fundaði fyrir helgi með bæjarstjórum sveitarfélaga við Breiðafjörð um stöðuna. Hann segir ákvörðunina um að halda Baldri við Vestmannaeyjar byggja alfarið á öryggissjónarmiðum og að markmiðið sé að koma í veg fyrir samgöngurof við Eyjar.
Ráðherrann segir jafnframt mikilvægt að draga lærdóm af stöðunni og tryggja að rekstraraðilar Herjólfs hafi aðgang að sérsmíðuðum varamótorum. Þá verði á næstunni hafin vinna við heildstæða framtíðaráætlun um ferjusiglingar, þar sem meðal annars verði horft til endurnýjunar ferjuflotans og samnýtingar varaskipa.
Særún hefur undanfarið sinnt flutningum farþega, vara og nauðsynja til Flateyjar. Skipið hefur leyfi til að flytja allt að 115 farþega, en getur ekki flutt bifreiðar líkt og Baldur. Þrátt fyrir það telja stjórnvöld að með áframhaldandi siglingum Særúnar verði hægt að viðhalda grunnþjónustu við Flatey á meðan Baldur sinnir hlutverki varaskips Herjólfs. Særún hefur flutt farþega, vörur, neysluvatn, fiskikör og annan farm til Flateyjar. Þá hefur búnaði verið komið fyrir í eynni sem gerir kleift að sinna vöruflutningum til og frá Flatey.