Alexandra Ósk, Ásdís Halla og Birna María eru mættar til Kína með u-20 ára landsliðinu
Ásdís Halla Hjarðar í leik með ÍBV í vetur. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Eyjastelpurnar og leikmenn ÍBV í handbolta, Alexandra Ósk Viktorsdóttir, Ásdís Halla Hjarðar og Birna María Unnarsdóttir eru mættar til Kína til að taka þátt í Heimsmeistaramóti u-20 kvenna í handbolta. Er þetta í annað sinn sem þessi árgangur tekur þátt í heimsmeistaramóti sem fer fram í Kína. 

Ferðalagið til Kína var langt en stelpurnar flugu fyrst til Parísar og þaðan til Beijing í Kína. Liðið flaug svo til Jinzhong þar sem liðið leikur leiki sína í riðlakeppninni. 

Ísland hefur leik á morgun, miðvikudag. Liðið er í riðli með Svartfjallalandi, Tékklandi og Bandaríkjunum. 

Leikir Íslands á HM u-20 kvenna:

Miðvikudagur
03:45 Ísland – Svartfjallalands (11:45 á kínverskum tíma)

Fimmtudagur
06:00 Ísland – Tékkland (14:00 á kínverskum tíma)

Laugardagur
03:45 Ísland – Bandaríkin (11:45 á kínverskum tíma)

Hópur Íslands á HM:

Markmenn
Sif Hallgrímsdóttir – ÍR

Elísabet Millý Elíasardóttir – HK

Aðrir leikmenn

Alexandra Ósk Viktorsdóttir – ÍBV

Birna María Unnarsdóttir – ÍBV

Ásdís Halla Hjarðar – ÍBV

Arna Karítas Eiríksdóttir – Valur

Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir – Valur

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir – KA/Þór

Dagmar Guðrún Pálsdóttir – Fram

Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir – Selfoss

Guðmunda Auður Guðjónsdóttir – Haukar

Guðrún Hekla Traustadóttir – Valur

Hulda Hrönn Bragadóttir – Selfoss

Inga Fanney Hauksdóttir – HK

Sara Lind Fróðadóttir – Valur

Sara Rún Gísladóttir – Fram

Nýjustu fréttir

Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.