Myndband frá Haugasvæðinu: Vinnan komin á fullt
default
Loftmynd af Haugasvæðinu þar sem vinna við þriðja áfanga grjótleitar stendur nú yfir. Rannsóknarholan sést neðarlega á myndinni, en niðurstöður verkefnisins geta haft veruleg áhrif á kostnað og tímasetningar uppbyggingar stórskipakants norðan við Eiðið. Ljósmynd: Halldór B. Halldórsson.

Vinna við þriðja áfanga grjótleitar á Haugasvæðinu er komin á fullt skrið og hefur svæðið nú tekið á sig mynd virks framkvæmdasvæðis, líkt og fjallað var um hér á vef Eyjafrétta um helgina. Í þessu myndbandi, sem Halldór B. Halldórsson tók upp í gær, má sjá hvernig framkvæmdirnar standa nú og umfang þeirrar vinnu sem fram undan er.

Sjá einnig: Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu

Miklar vonir eru bundnar við niðurstöður rannsóknanna sem geta haft veruleg áhrif á kostnað og tímasetningar uppbyggingar stórskipakants norðan við Eiðið, einnar stærstu hafnarframkvæmdar sem fyrirhuguð er í Vestmannaeyjum á næstu árum.

Play Video

Nýjustu fréttir

Kjötsúpukvöld Karlakórsins á föstudag
Ný bók frá Ásmundi Friðrikssyni 
Eyjafréttir og Fretta.is í samstarf
Pysjurnar bæði fleiri og þyngri í ár
Radarhýsi rís á Stórhöfða
Styrkur Eyjafrétta liggur líka hjá lesendum
Vertu velkomið haust
Íþróttamiðstöðin eitt af táknum endurreisnar Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.