Jarl tók við sprota Stefáns hjá Lúðrasveit Vestmannaeyja.

Um helgina var í boði mikil og metnaðarfull dagskrá vegna Nótt Safnanna sem að Vestmannaeyjabær stóð fyrir. Hátíðin hófst á föstudaginn með setningu í Stafkirkjunni en þar söng Jarl Sigurgeirsson sálma við undirleik Guðmundar Guðjónssonar.

Á laugardaginn voru svo árlegir tónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja en á þeim tónleikum tók Jarl Sigurgeirsson við sprota stjórnanda lúðrasveitarinnar úr höndum Stefáns Sigurjónssonar. Stefán lét af störfum eftir farsæl 20 ár sem stjórnandi sveitarinnar. Við þetta tækifæri var Stefáni færð mynd frá LV en myndin var af Stefáni og einum skó. Stefán sagði við það tækifæti að myndin væri góð en myndefnið ekki.
LV lék svo lagið Stebbi skó og tónleikagestir risu úr sætum þegar Stefán afhenti Jarli tónsprotann.

Myndir frá viðburðum helgarinnar má sjá hér 

Ljósmyndir Ólafur Lárusson

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.