Sætur útisigur á ÍR

Selfyssingar náðu loksins sigri á ÍR-ingum í þriðju viðureign liðanna í 1. deild karla í vetur. Mjótt var á mununum en Selfyssingar unnu að lokum með einu marki, 31-32. Leikurinn byrjaði rólega en ÍR-ingar höfðu undirtökin framan af og náðu mest þriggja marka forskoti. Selfyssingar komu til baka og minnkuðu muninn í 18-17 fyrir leikhlé. […]

50 ára afmælisárshátíð

Í tilefni árshátíðar og 50. starfsárs Laugalandsskóla verður vegleg hátíð á föstudag og laugardag. Nemendur hafa sem fyrr keppst við að undirbúa skemmtiatriði en þau eru óvenju fjölbreytt og vönduð í ár vegna tímamótanna. (meira…)

Sökuð um að kúga fram virkjun

Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, sakaði Landsvirkjun á Alþingi í dag um fjárkúgun, með því að beita vinsælu máli, uppbyggingu netþjónabúa, til að koma áfram óvinsælu máli, virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Mörður vakti athygli á því að haft er eftir Þorsteini Hilmarssyni, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, í Fréttablaðinu í dag að það sé ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir raforkusölu […]

FSu í góðri stöðu eftir sigur á Hetti

Línur eru farnar að skýrast eftir leikina í 1. deild karla í körfubolta sem fram fóru sl. þriðjudagskvöld. Breiðablik sigraði Val og tryggði sér sæti í úrvalsdeild. Á sama tíma lagði FSu Hött á Egilsstöðum og fóru því tveimur stigum upp fyrir Val. FSu er þá nánast búið að tryggja sér 2. sætið og heimaleikjaréttinn […]

Skólahlaup HSK haldið að Laugarvatni 9. apríl n.k.

Hið árlega skólahlaup HSK verður haldið á Laugarvatni 9. apríl nk. og hefst kl. 10:00. Sama fyrirkomulag verður á mótinu og á undanförnum árum, þ.e. keppt með fyrirkomulagi sem nefnist ,,Fjör í frjálsum.” (meira…)

Tillögur frá héraðsþingi HSK

Á héraðsþingi HSK, sem haldið var í Þorlákshöfn 23. febrúar sl., störfuðu 5 nefndir sem fjölluðu um ýmis mál er varða hreyfinguna. Alls voru 25 tillögur samþykktar á héraðsþinginu og margar þeirra tengdust mótahaldi HSK og heildarstigatöflu. Samþykkt var ný reglugerð um héraðsmót í handknattleik, og þá var samþykkt að bæta við héraðsmótum inn á […]

�?tlaði gangandi til Reykjavíkur

Aðfaranótt laugardags var leitað aðstoðar lögreglu vegna rúmlega tvítugs manns sem rokið hafði út úr orlofshúsi við Úlfljótsvatn í Grafningi og ætlaði að fara fótgangandi til Reykjavíkur illa klæddur og ölvaður. Björgunarsveitir voru ræstar út en þegar lögreglan fann manninn á þjóðveginum við Hlíð var aðstoð björgunarsveita afturkölluð. (meira…)

Grétar sýnir í Listagjánni

Grétar Þ. Hjaltason sýnir í Listagjá Bæjar-og héraðsbókasafnsins í mars. Þetta eru myndir unnar með blandaðri tækni og myndefnið sótt í Selfoss og nánasta umhverfi. Grétar hefur áður haldið einkasýningar s.s. í Eden í Hveragerði. Þetta er sölusýning. (meira…)

Er okkar vænst?

Myndlistarkonurnar Borghildur Óskarsdóttir og Sigríður Melrós Ólafsdóttir sýna verk sín á nýrri sýningu í Listasafni Árnesinga. Við fyrstu sýn virðast verk þeirra eiga fátt sameiginlegt, enda eru þær af sitt hvorri kynslóðinni og hafa unnið með ólík efni út frá ólíkum forsendum án þess aðvita mikið hvor af annarri. En þegar verkum þeirra er teflt […]

Gestir með fíkniefni á Litla Hrauni

Mjög mikið af fíkniefnum og sprautum fannst á gestum á Litla-Hrauni í dag. Lögreglulið á Selfossi var kallað til eftir að hundur fangelsisins varð þess var, að ekki var allt með felldu. Fangelsisyfirvöld hafa að undanförnu tekið á fíkniefnamálum fanga og hert mjög eftirlit í fangelsinu. Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri, segir talið að sé að efnin […]

Tónleikaröð Stórsveitar Suðurlands

Stórsveit Suðurlands mun halda tónleika víða á Suðurlandi í mars og apríl. Tónleikaröðin hefst á sunnudaginn, þann 9. mars, þegar sveitin leikur á Kirkjubæjarklaustri og í Vík. Tónleikarnir á Klaustri hefjast kl. 16 í félagsheimilinu en kl. 20:30 stígur sveitin á svið í Leikskálum. Fimmtudaginn 13. mars kl. 21:00 leikur sveitin í Árhúsum á Hellu […]

STYRKIR TIL MARKAÐSSETNINGAR

Sveitarstjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps samþykkir að aðilar sem stunda atvinnurekstur og eiga lögheimili í sveitarfélaginu geti sótt um styrk til frekari markaðssetningar. Styrkur getur numið allt að 28% af þeirri upphæð sem viðkomandi atvinnurekandi greiðir af atvinnuhúsnæði sínu í fasteignagjöld. (meira…)

Gistinóttum á hótelum í janúar fjölgaði um rúm 12% milli ára

Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru 57.200 en voru 51.000 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um 12% milli ára og er fjölgunin mest á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi og Suðurlandi. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á höfuðborgarsvæðinu, úr 39.400 í 47.700 eða um 21%. Gistinóttum á Norðurlandi fjölgaði í janúar um rúm 8% á […]

Hestur í matinn

Það var merkilegt í hádeginu í dag þegar jafn góður fréttamaður og Gissur Sigurðsson hefur þóst vera hingað til, skuli koma með jafn fáránlega og illa unna frétt, hann hélt því fram að loðnuskipstjórar væru með milljón á dag og hásetar væru með hundruðir þúsunda á dag. (meira…)

Undirbúa Dagvakt í Bjarkalundi

„Þetta gekk eins og í sögu og það er allt eins og best verður á kosið þarna, segir Ragnar Bragason leikstjóri, en hann lagði leið sína á Hótel Bjarkalund um helgina ásamt öðrum aðstandendum Dagvaktarinnar, til að kanna aðstæður þar á bæ. Tökur á Dagvaktinni, sem er sjálfstætt framhald hinnar geysivinsælu þáttaraðar Næturvaktarinnar, fara fram […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.