Kotmótið á sínum stað um verslunarmannahelgina

Kristilegt mót um verslunarmannahelgina til að lofa og upphefja Jesú Krist, Kotmót er nú haldið í 56 skipti. Boðið verður upp á lifandi tónlist, líflegar samkomur, varðeldur auk þess verður fjölbreytt dagskrá fyrir börnin á sérstöku barnamóti.Mótið verður haldið í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð 31. júlí til 4. ágúst. (meira…)

Hallgrímur Íslandsmeistari í holukeppni

Kylfingurinn efnilegi Hallgrímur Júlíusson í Golfklúbbi Vestmannaeyja, bætti enn einni rósinni í hnappagatið um helgina þegar hann fagnaði sigri í Íslandsmótinu í holukeppni. Mótið er ennfremur hluti af Kaupþingsmótaröðinni en Hallgrímur hefur sigrað á þremur síðustu mótum. Þá varð Sigríður Lára Garðarsdóttir, GV í þriðja sæti í stelpnaflokki. (meira…)

Hitabeltisstormurinn Berta nálgast landið

Það er ekki oft sem leifar fellibylja gerast nærgöngular á okkar slóðum. Á haustin, þ.e. í september kemur fyrir að úr sér gengnir fellibylir ganga í endurnýjun lífdaga ef þeir ná inn í vestanvindabeltið og í veg fyrir nýmyndaða lægð. Það er þó frekar fátítt, en afleiðingin gjarnan sú að hér gerir vitlaust veður. (sjá […]

Lundafréttir

Það er búið að vera ágætis veiði síðustu 3 dagana hjá mér, en 3 daga þar á undan var nánast engin veiði. Veðurfar hefur verið mjög óhagstætt og sérstaklega er hægviðri og ríkjandi norðlægar áttir mjög erfiðar, en úr því á nú að rætast eftir helgi. Ef einhver hefur áhuga á að sjá undirritaðan við […]

Eftirmaður Friðriks?

Nokkur eftirvænting ríkir um það hver verði arftaki Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar, þegar hann fer á eftirlaun í haust. Stjórn Landsvirkjunar mun ákveða hver taki við starfinu en Sjálfstæðisflokkurinn telur sig eiga starfið. (meira…)

Stöðugt er heitið á Strandarkirkju

STÖÐUGT er heitið á Strandarkirkju, að sögn sr. Baldurs Kristjánssonar. Hann messar þar annan hvern sunnudag yfir sumarið. „Áheitin fóru vaxandi á árunum 2003-2006 og hafa náð jafnvægi nú,“ sagði Baldur. „Það segir í gömlum munnmælum að Strandarkirkja borgi fyrir sig. Fólki þykir það og segir sögur af því.“ (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.