Kylfingurinn efnilegi Hallgrímur Júlíusson í Golfklúbbi Vestmannaeyja, bætti enn einni rósinni í hnappagatið um helgina þegar hann fagnaði sigri í Íslandsmótinu í holukeppni. Mótið er ennfremur hluti af Kaupþingsmótaröðinni en Hallgrímur hefur sigrað á þremur síðustu mótum. Þá varð Sigríður Lára Garðarsdóttir, GV í þriðja sæti í stelpnaflokki.