Metnaður ÍBV fékk mig til að vera áfram hjá félaginu

„Það er metnaður hjá félaginum og það á að styrkja liðið og gera betri hluti en í sumar. Það var fyrst og fremst sá metnaður sem er fyrir hendi sem varð til þess að ég ákvað að vera áfram hjá félaginu. Við ætlum okkur stærri hluti en í sumar og við ætlum að taka næsta […]

Andri með þriggja ára samning við ÍBV

Eins og greint var frá hér á Eyjafréttir.is hafði vefurinn heimildir fyrir því að Grindavík hafi boðið Andra Ólafssyni góðan samning fyrir að spila með liðinu næsta sumar. En hlutirnir gerðust hratt í Eyjum í dag því nú undir kvöld skrifaði Andri undir þriggja ára samning við ÍBV. Andri hefur, þrátt fyrir ungan aldur, verið […]

Ekki leita veikina uppi

Í byrjun vikunnar bárust til landsins fyrstu skammtarnir af bóluefni gegn svínaflensunni sem farin er að stinga sér niður í Vestmannaeyjum. Í Eyjum er búið að bólusetja forgangshópa sem eru heilbrigðisstéttirnar, björgunarsveitir, slökkvilið og lögreglan. Næsti hópur er fólk með undir­liggjandi sjúkdóma, eins og lungna-, hjarta- og æðasjúkdóma og ófrískar konur. (meira…)

Kvóti verði tengdur byggðunum

Guðrún Erlingsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra að því á þingi í dag hvort til skoðunar væri að tengja kvóta við tilteknar sjávarbyggðir þannig að fiskvinnslufyrirtæki geti keypt kvóta án framsalsheimildar til nýtingar í heimabyggð. (meira…)

Rekstur Flugfélags Vestmannaeyja að komast í eðlilegt horf

Á fundi sínum á þriðjudaginn þakkaði bæjarráð skjót við­­brögð heilbrigðisráðuneytisins við erindi Vestmannaeyjabæjar um mikilvægi þess að sjúkravél sé öllum stundum staðsett í Vestmannaeyjum. Erindið var sent ráðuneytinu þegar lofthæfisskírteini flugvéla Flugfélags Vestmannaeyja, sem annast sjúkraflug fyrir Vest­mannaeyjar, runnu út. Þar með talin flugvélin sem FV notaði til sjúkraflugs. FV brást við og hefur leigt […]

Andri �?lafsson í Grindavík?

Samkvæmt áræðanlegum heim­ildum Eyjafrétta hefur úrvalsdeildarlið Grindavíkur gert Andra Ólafssyni, fyrirliða ÍBV�??í knatt­spyrnu, tilboð um að leika með liðinu næsta sumar. Tilboðið er samkvæmt sömu heimildum mjög gott, svo gott að hugsanlega getur ÍBV ekki jafnað tilboðið. Andri er samningslaus og hefur verið í viðræðum við ÍBV en vitað var af áhuga nokkurra, ef ekki […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.