Eyjakvöld á Kaffi Kró í kvöld

Eyjakvöldin á Kaffi Kró hafa verið afar vinsæl í vetur. Þau eru haldin fyrsta fimmtudagskvöld í hverjum mánuði og það eru Obbí-síí félagarnir sem standa fyrir þeim. – Í kvöld kl. 21 boða þeir til enn eins Eyjakvölds og eru búnir að bæta við nýjum/gömlum lögum eins og „Göllavísum“ og „Ó hvað ég var fullur […]

Lundar í Stórhöfða valið fallegasta frimerkið

Félagar í félagi frímerkjasafnara völdu nýlega, fallegasta frímerkið árið 2009. Var það gert með kosningu innan félagsins. Alls hlutu 9 frímerki atkvæði. Fallegasta frímerkið var valið mynd af lunda í Stórhöfða, með Eyjafjallajökul í baksýn. Var frímerkið tileinkað norrænu frímerkjasýningunni sem var í Hafnarfirði í fyrravor, samkvæmt tilkynningu frá félagi frímerkjasafnara. (meira…)

Reynsla úr atvinnulífinu nýttist vel

Fjórir af sjö nemendum, sem útskrifuðust frá Tækniskólanum, skóla atvinnulífsins, komu frá Eyjum. Það voru þeir Arnar Richardsson, Brynjar Guðmunds­son, Sigmar Gíslason og Valgarð Jónsson sem allir luku námi í út­vegsrekstrarfræði og rekstrarfræði. Útskriftin var 23. janúar og út­skrif­uðust þeir frá tækniakademíu Tækniskólans. (meira…)

Dizo flutt á Heiðarveginn

Hárgreiðslustofan Dizo opnaði á nýjum stað í bænum á mánudaginn en stofan er nú til húsa á Heiðar­vegi 6 eða þar sem fataverslunin Flam­ingo var áður til húsa. Dizo hefur síðustu misseri verið í eigu Hafdísar Ástþórsdóttur en Ásta Jóna Jóns­dóttir keypti sig inn í fyrirtækið í tengslum við flutn­inginn en báðar eru þær fæddar […]

Framkvæmdir við knattspyrnuhús hafnar

Þá er bygging nýs knattspyrnuhúss kominn af stað. Það eru drengirnir frá Steina og Olla sem sjá um að koma húsinu upp, eftir að íslenska gámafélagið hefur lokið við jarðvegsvinnuna. Það mun klárast á næstu dögum. Stefnt er að því að húsið verði tilbúið næsta haust. (meira…)

Samningar undirritaðir vegna farþegahúss í Land-Eyjahöfn

Í gær var undirritaður samningur um byggingu farþegaaðstöðu fyrir Landeyjahöfn. Verktakar eru Sá verklausnir og samningsupphæðin er 91,8 m.kr. Verktaki stefnir að því að hefja vinnu 8. febrúar en verklok eiga að verða 20. júní.. (meira…)

Bíða meiri hrogna­fyllingar

Sjávarútvegsráðuneytið gaf út 130 þúsund tonna heildarkvóta í loðnu og þar af fá Íslendingar að veiða 90 þúsund tonn. Ísfélag Vest­manneyja má veiða l8 þúsund tonn af loðnu og Vinnslustöð Vestmannaeyja 9000 tonn. Auk þess hefur Huginn yfir að ráða 1270 tonnum. Samtals ráða því Eyjamenn yfir 28.270 tonnum, eða tæplega þriðjungi loðnukvót­ans. (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.