Börnin í næstu blokk voru líka útá svölum

Eyjafrettir hafa undanfarið verið helteknar af pólitíkinni enda kosningar á morgun. En það er kannski ágætt að slá aðeins á létta strengi milli alvöruþrunginna greina frambjóðendanna. Hér er einn góður: Jón og Gunna bjuggu í mjög lítilli íbúð í Breiðholtinu. Þau komust að því að til að fá næði til að gamna sér um miðjan […]
Nýtum kosningaréttinn!

Góð kjörsókn á kosningadag skiptir ekki bara framboð gríðarlegu máli heldur bæjarfélagið í heild sinni. Því fleiri einstaklingar sem láta sig varða um velferð bæjarfélagsins og mæta á kjörstað því betra umboð hefur viðkomandi meirihluti til starfa. Þannig má segja að í raun sé mun meira að marka sannan vilja bæjarbúa fyrir stjórnsýslu ef fleiri […]
Hvað er lýðræði?

Þó íbúalýðræði sé ekki vel þekkt fyrirbæri hér á landi hefur það verið í mikilli þróun um áratugaskeið, einkum á Norðurlöndum og í N-Evrópu og teygir nú anga sína víða um heim. Umræðan hér á landi er hins vegar skammt á veg komin eins og meðal annars sést á aðsendri grein í nýjustu Fréttum. Þar […]
Fullorðnir ráða – skólaheimsókn til Danmerkur
Á dögunum heimsótti ég grunnskóla í Árósum. Skólinn heitir Katrinebjergskolen og telur rúmlega 600 nemendur. Skólinn hefur ákveðna sérstöðu í sveitarfélaginu enda 10 sérdeildarbekkir í skólanum ásamt sérstakri stuðningsdeild, nokkurs konar námsveri. Mér lék sérstök forvitni á að fræðast meira um starf sérdeildarbekkjanna og hvernig eiginlega stæði á því að í 600 barna skóla væru […]
Norðan og sunnan Strandvegs

Mikið af ævi minni hef ég alið manninn norðan Strandvegs og er ég svo sem ekki sá eini hér í eyjum sem það hefur gert. Maður byrjaði á bryggjunum að veiða, þvældist niður í Völund til pabba og kíkti á kallana, stal eins og svo margir aðrir peyjar slippbátnum og réri út í löngu. Fór […]
3-3-1 = 7-0

Já sæll. Þarf einhver að fara á taugum yfir því. Undangengið tímabil hafa nánast allar atkvæðagreiðslur í bæjarstjórn farið 7-0. V- listinn er tilbúinn til að starfa með hverjum sem er eftir kosningar og kannski væri það bara hið besta mál að vera með n.k. þjóðstjórn á bænum 7-0. Setjast yfir málin eins og gert […]
Hvert stefnum við í Herjólfsdal?

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að miklar framkvæmdir standa nú yfir í Herjólfsdal, þar sem ÍBV er að koma upp varanlegum mannvirkjum fyrir þjóðhátíð. Ekki skal gert lítið úr notagildi þessara mannvirkja og þau munu eflaust spara vinnu við undirbúning hátíðarinnar á hverju ári. Það sem hins vegar er ámælisvert er hvernig að […]
Unnu Fjölni 0:10

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu gerði góða ferð í Grafarvoginn í gær þegar liðið sótti Fjölni heim í B-riðli 1. deildar kvenna. Lokatölur urðu 0:10 stórsigur hjá Eyjastúlkum, sem hafa farið mjög vel af stað í 1. deildinni en eftir tvo leiki er markatala liðsins 16:0 og fullt hús stiga. Staðan í hálfleik í leiknum gegn […]
�?að er leikur að læra

Aðeins með einu móti getur þú alið upp börnin þín: Með því að ala upp sjálfan þig… Hugsa því um uppeldi þinnar eigin sálar, þegar þú hugar að uppeldi barna þinna. (D.G. Monrad). Leikskóli er fyrsta skólastigið og þar fer fram mikilvægt mótunarskeið í lífi hvers barns. Það er ekki spurning hvort barnið mitt eigi […]
Stöndum vörð um sannleikann

Ekki er hægt að ætlast til þess nýjir frambjóðendur hafi djúpa og mikla þekkingu á flóknum fjárhags-málum sveitarfélagsins. Slík krafa væri ósanngjörn. Rekstur bæjarins er viðamikill og um hann gilda flóknar reglur um reiknisskil og fl. Þegar fjallað er um þessi mál er auðvelt að falla í þá gryfju að taka tölur upp úr ársreikningum […]
Ruddaleg aðför að kjósendum
Hér áður fyrr tíðkaðist sá ósiður við kosningar að fulltrúar stjórnmálaflokkanna fylgdust með því á kjörstað hverjir kæmu til að kjósa og hverjir ekki. Merkt var við og upplýsingar sendar um þetta á kosningaskrifstofur til upplýsinga. Eftir því sem tíminn leið þóttu þessi vinnubrögð vafasöm í meira lagi og því voru þau nánast lögð af. […]
Kjóstu þá sem þú treystir

Ísland er lýðræðisríki þar sem þjóðin fer sjálf með æðsta valdið. Það sama gildir um sveitarstjórnir eins og ríkið að æðsta vald sveitarfélagsins liggur hjá íbúum þess. Á fjögurra ára fresti kjósa íbúarnir sér fulltrúa til að fara með þetta vald sitt. Þessi grunnskipan samfélagsins er afar mikilvæg hverri þjóð og hafa mörg blóðug baráttan […]
Hvers vegna ættir þú að kjósa V?
Á laugardaginn er gengið til kosninga. Þá velja Vestmannaeyingar sér fólk til að stýra samfélaginu næstu fjögur árin. Það er ánægjulegt hversu margir góðir og hæfir einstaklingar hafa boðið sig fram. Þrír framboðslistar, hlaðnir af bæði reyndu og fersku fólki. Þrír ágætir valkostir. (meira…)
Fjórar í U-16 ára landsliðinu

Fjórar ungar handknattleiksstúlkur úr ÍBV hafa nú verið valdar í úrtakshóp U-16 ára landsliðs Íslands í handbolta. Þetta eru þær Aðalheiður Pétursdóttir, Berglind Sigurðardóttir, Drífa Þorvaldsdóttir og Sigríður Garðarsdóttir. Liðið mun æfa dagana 4.-6. júní í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi en verkefnastjóri liðsins er Hilmar Guðlaugsson. (meira…)
Betur má ef duga skal

Af reynslu minni af þeim ferðamönnum sem komið hafa til Vestmannaeyja hefur svarið við spurningunni um hvernig þeim hafi líkað heimsóknin, alltaf verið á einn veg: „Það er mjög gott að vera hér… EN.“ Ég vil að þegar ferðamaður er spurður hvernig var hér að hann geti sagt: „Hér er mjög gott að vera og […]
Fagur og lifandi bær – Okkar stolt

Nú þegar kjörtímabilið er að renna sitt skeið er gaman að skoða aðeins hvað gert hefur verið og hvert stefnt er í skipulagsmálum miðbæjarins. Í fyrsta skipti í mjög langan tíma hafa stórar fjárhæðir verið settar í það sem kallað hefur verið fegrunaraðgerðir í miðbæ Vestmannaeyja. Þar hefur verið settur aukinn krafur í prýðis gott […]
Michael Jackson tribute í Höllinni í kvöld

Nú er næstum liðið ár síðan Poppkóngurinn Michael Jackson féll frá og hefur Alan Jones og Stefán Henrýson verið að setja saman lög í svokallað “tribute”show eða tónleika sem þeir munu fara með um landið í sumar. Fyrstu tónleikarnir verða í Vestmannaenyjum í kvöld, föstudaginn 28.maí í Höllinni. Eyjakonan Selma Ragnarsdóttir klæðskeri hannar alla búninga […]
Ágæti Eyjamaður – Settu X við V

Í bæjarstjórnarkosningunum 2006 skipaði ég fimmta sæti V-listans. V-listinn hlaut 900 atkvæði í þeim kosningum og þrjá fulltrúa kjörna. Fljótlega á kjörtímabilinu æxluðust hlutir þannig að ég var kominn inn í bæjarstjórn sem þriðji maður. Frá upphafi setu minnar í bæjarstjórn hef ég haft þá skoðun að þeir sjö fulltrúar sem sitja í bæjarstjórn verði […]
Humarsúpa í boði í Ásgarði
Kosið verður til bæjarstjórnar á morgun. Lokaspretturinn í kosningabaráttunni stendur yfir. Allt er gert til þess að þétta raðirnar, kalla á sitt fólk. Hvert atkvæði gæti skipt máli. Kosningastjórn Sjálfstæðisflokksins hafði samband við eyjafrettir og bað um að koma þeim skilaboðum á framfæri, að síðasti súpufundur flokksins í þessari kosningabaráttu yrði í hádeginu í dag […]
Kjósum um stórframkvæmdir

Á Íslandi er svokallað fulltrúalýðræði. Fulltrúalýðræði þýðir einfaldlega að „lýðurinn“ eða almenningur kýs sér fulltrúa, til fjögurra ára, til að taka ákvarðanir um þau mál sem þarf að taka ákvarðanir um. Margir tala um að lýðræðið virki bara á fjögurra ára fresti og það er að vissu leyti rétt. Ef almenningur er ekki sáttur við […]