Stóðu sig vel þrátt fyrir tap

Nú rétt í þessu lauk spurningaþætti RÚV, Útsvari en þar öttu kappi Vestmannaeyjar og Reykjavík. Eftir ansi jafna keppni þar sem Reykvíkingar höfðu frumkvæðið lengst af, höfðu Reykvíkingar betur 77:90. Þó er ekki öll nótt úti enn því Vestmannaeyjar er sem stendur þriðja stigahæsta tapliðið en fjögur stigahæstu tapliðin fara áfram. (meira…)
Anton skrifar undir þriggja ára samning

Kantmaðurinn efnilegi Anton Bjarnason, skrifaði í dag undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnulið ÍBV. Anton kom við sögu í fimm leikjum ÍBV í sumar en Anton lék sumarið 2009 með KFS í 3. deild auk þess að leika nokkra leiki með ÍBV en hann lék 10 leiki með KFS og skoraði sjö mörk. Anton […]
Gjaldskrá �?orlákshafnar gildir frá og með deginum í dag

Undanfarnar vikur hefur Herjólfur siglt til Þorlákshafnar en vegna erfiðleika í tölvukerfi hefur ekki verið hægt að innheimta fargjöld samkvæmt þeirri gjaldskrá sem gildir fyrir þá höfn. Frá og með deginum í dag tekur gjaldskrá Þorlákshafnar gildi fyrir siglingar milli lands og Eyja á meðan siglt er til þeirrar hafnar. (meira…)
Hraustasta fólkið krýnt í Eyjum

Á morgun, laugardag mun fara fram fjórða og síðasta mótið í Intersport Þrekmótaröðinni 2010 í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum. Mótin fjögur eru Lífstílsmeistarinn, CrossFit leikarnir, Boot Camp keppnin og 5×5 áskorunin, sem haldin verður í Eyjum. Mótið hefst klukkan tíu um morguninn, verður eitthvað fram eftir degi og fer fram í sal 2. (meira…)
Hjónaballi frestað

Hjónaballinu, sem fyrirhugað var að halda í Alþýðuhúsinu á laugardaginn hefur verið frestað. Áætlað er að halda ballið eftir áramót en það var hljómsveitin Obbó-síí sem stendur fyrir uppákomunni. (meira…)
ÍBV mætir Haukum

Nú í hádeginu var dregið í 16-liða úrslitum Eimskipsbikar karla og 1. umferð Eimskipsbikar kvenna. ÍBV átti tvö lið í pottinum, kvennaliðið og B-lið karla. Karlarnir fá verðugt verkefni því ÍBV tekur á móti úrvalsdeildarliði Hauka, líklega stórleikur umferðarinnar. Í kvennaflokki fengu Eyjastúlkur einnig heimaleik og eins og karlarnir, taka þær á móti Haukum en […]
Grískt kvöld á Vinaminni

Í kvöld klukkan 21.00 verður grískt kvöld á Vinaminni. Þar verða leikin lög eftir Mikis Teodorakis, sem m.a. átti lögin í kvikmyndinni Zorba. Sólveig U. Ragnarsdóttir syngur og Guðmundur H. Guðjónsson verður á píanóinu. Ókeypis inn. (meira…)