Gjaldskrá �?orlákshafnar gildir frá og með deginum í dag
Undanfarnar vikur hefur Herjólfur siglt til Þorlákshafnar en vegna erfiðleika í tölvukerfi hefur ekki verið hægt að innheimta fargjöld samkvæmt þeirri gjaldskrá sem gildir fyrir þá höfn.
Frá og með deginum í dag tekur gjaldskrá Þorlákshafnar gildi fyrir siglingar milli lands og Eyja á meðan siglt er til þeirrar hafnar.