Glódís Dúna Óðinsdóttir, leikmaður ÍBV í handbolta, hefur verið valin í 16 manna lokahóp U17 ára landsliðs Íslands sem tekur þátt í undankeppni Evrópumótsins 2027. Rakel Ósk Bragadóttir og Arnar Daði Arnarsson, þjálfarar liðsins, tilkynntu hópinn fyrir keppnina sem fram fer í Færeyjum dagana 26.–28. nóvember.
Ísland leikur í riðli með Færeyjum, Ísrael og Tyrklandi. Landsliðshópurinn kemur saman til æfinga laugardaginn 21. nóvember og heldur til Færeyja miðvikudaginn 25. nóvember.
Landsliðshópur Íslands
Anja Gyða Vilhelmsen – Valur
Bára Ingibjörg Leifsdóttir – Selfoss
Bjartey Hanna Gísladóttir – Fram
Elma Kolbrún Bjarnadóttir – FH
Emilía Guðný Magnúsdóttir – HK
Freydís Ragna Kristjánsdóttir – HK
Glódís Dúna Óðinsdóttir – ÍBV
Helga Jenný Vigfúsdóttir – HK
Hjördís Gauja Kjartansdóttir – Selfoss
Katrín Ásta Jóhannsdóttir – ÍR
Kristín Einarsdóttir – HK
Sara Sigurvinsdóttir – Valur
Sara Sveinsdóttir – Valur
Soffia Helen Sölvadóttir – Grótta
Tinna Dröfn Hauksdóttir – HK
Þórhildur Káradóttir – Valur
Varamenn
Sonja Guðrún Hafþórsdóttir – Víkingur
Anna Bára Hjaltadóttir – Fram
Hulda Þorradóttir – FH
Matthildur Helga Ólafsdóttir – Valur