Á morgun, laugardag mun fara fram fjórða og síðasta mótið í Intersport Þrekmótaröðinni 2010 í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum. Mótin fjögur eru Lífstílsmeistarinn, CrossFit leikarnir, Boot Camp keppnin og 5×5 áskorunin, sem haldin verður í Eyjum. Mótið hefst klukkan tíu um morguninn, verður eitthvað fram eftir degi og fer fram í sal 2.