Mamma Mia! frumsýnt í Bæjarleikhúsinu á laugardag

Söngleikurinn Mamma Mia! verður frumsýndur hjá Leikfélagi Vestmannaeyja á laugardaginn. Æfingar hafa staðið yfir streitulaust síðustu tvo mánuði og miðað við það sem blaðamaður Eyjafrétta sá í gærkvöldi, þá verður uppskeran ríkuleg. Tónlistin er aðalatriðið í verkinu og þar er valinn maður í hverju rúmi, rjóminn af tónlistarflórunni í Eyjum má segja. Með fréttinni fylgir […]

Hoffman læðist upp listann

Eyjarokksveitin Hoffman er með nýtt lag á vinsældarlista Rásar tvö sem var birtur á laugardaginn. Lagið heitir Royal face og kemur inn í 25. sæti listans en lagið er melódískt rokklag af bestu gerð. Hægt er að kjósa lagið á heimasíðu Vinsældarlista Rásar 2 í vikulegri kosningu um bestu lögin á Íslandi í hverri viku. […]

Guðbjörg í úrvalsliði N1 deildarinnar

Guðbjörg Guðmannsdóttir, handknattleikskona úr ÍBV er í úrvalsliði síðari umferðar N1 deildarinnar. Guðbjörg var einnig í úrvalsliðinu fyrir fyrri umferðina enda einn besti hornamaður deildarinnar og mikil íþróttakona. Bikarmeistarar Fram eiga þrjá fulltrúa í úrvalsliðinu, Íslandsmeistarar Vals tvo og ÍBV og HK sitt hvorn leikmanninn. Þá var Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, línumaður Vals valin best og […]

Fiskistofa biðst afsökunar

Fiskistofa hefur beðist afsökunar á því að stofnunin hafi sent frá sér rangar upplýsingar um landaðan afla frá Vestmannaeyjum. „Í ljós hefur komið að gögn sem Fiskistofa staðfesti til fréttastofunnar voru röng. Sá hluti afla sem landað er í Vestmannaeyjum til endurvigtunar erlendis var ekki talinn til hluta afla sem landað er í Vestmannaeyjum við […]

Keppni í matarinnkaupum, ísbað og falin myndavél

Strákarnir í EyjarTV eru komnir með 6. þáttinn á netið. Í þættinum fara strákarnir í keppni í Vöruval þar sem þeir keppast um að kaupa inn á tíma en sá sem tapaði þurfti að fara í ísbað. Auk þess voru strákarnir með falda myndavél í Krónunni en sjón er sögu ríkari. Sjá má þáttinn hér […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.