Fiskistofa hefur beðist afsökunar á því að stofnunin hafi sent frá sér rangar upplýsingar um landaðan afla frá Vestmannaeyjum. „Í ljós hefur komið að gögn sem Fiskistofa staðfesti til fréttastofunnar voru röng. Sá hluti afla sem landað er í Vestmannaeyjum til endurvigtunar erlendis var ekki talinn til hluta afla sem landað er í Vestmannaeyjum við vinnslu upplýsinga fyrir fréttamann og skekkir það því niðurstöður um hlutfall afla sem fluttur er óunninn frá Vestmannaeyjum.“