Skandia strandaði í Landeyjahöfn

Dæluskipið Skandia strandaði í Landeyjahöfn í gær. Lóðsinn frá Vestmannaeyjum losaði skipið og hófst dæling úr höfninni aftur í morgun. Að sögn Guðjóns Egilssonar hjá Íslenska gámafélaginu fékk skipið á sig brot í hafnarmynninu og rak upp í sand inni í höfninni og festist. Ekki varð tjón á skipinu og Lóðsinn var fenginn til að […]

Perlunni snúið við á laugardag

Dæluskipið Perlan átti að taka þátt í dýpkunarframkvæmdum við Landeyjahöfn og lagði af stað frá Ísafirði á föstudaginn. Skipinu var hins vegar snúið við á laugardagsmorgun í Faxaflóa. „Það var mat okkar og Björgunar að Perlan gæti aðeins dýpkað í skamman tíma þar sem ölduspáin hafði versnað frá því á föstudeginum,“ sagði Sigurður Áss Grétarsson, […]

DV biður Guðbjörgu afsökunar

Í frétt í DV miðvikudaginn 30. mars 2011 var sagt frá því að Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðarkona úr Vestmannaeyjum, hefði selt tæplega 7,4 milljónir hluta í Glitni sem hún átti persónulega. Verðmæti umræddra hlutabréfa var í kringum 130 milljónir. Þessi frétt DV var ekki rétt. Sannleikurinn er sá að Guðbjörg á ennþá umrædd hlutabréf í Glitni. […]

�?þekkt ástand í sögu mannkyns

Ljóst er að miklar breytingar hafa orðið í Norður-Atlantshafi á undanförnum árum og þær líklega haft áhrif á íslenska sjófuglastofna. Ekkert lát virðist vera á hitasveiflu yfirborðs hafsins upp á við sem staðið hefur frá 1996. Óljóst er hvort hnattræn hlýnun bætist þar ofan á, að sögn Erps Snæs Hansen líffræðings. Gerist það skapast ástand […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.