Eiður Aron og �?órarinn Ingi í A-landsliðið

Eyjapeyjarnir Eiður Aron Sigurbjörnsson, leikmaður Örebro og Þórarinn Ingi Valdimarsson, sem leikur með ÍBV, hafa báðir verið valdir í fyrsta landsliðshóp nýs landsliðsþjálfara, Lars Lagerbäck. Þjálfarinn hefur boðað 28 leikmenn til æfinga 12. til 14. janúar næstkomandi en æfingarnar fara fram í Kórnum í Kópavogi. Einungis voru valdir leikmenn sem leika á Íslandi og á […]

Sjö mörk Kára dugðu skammt

Kári Kristján Kristjánsson skoraði sjö mörk fyrir Wetzlar í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Þau dugðu þó skammt því liðið tapaði fyrir Björgvini Páli Gústavssyni og félögum hans í Magdeburg, 31:25. (meira…)

Eitthvað um tjón í óveðrinu

Vikan fór að mestu leiti ágætlega fram hjá lögreglu og fá mál sem komu upp. Hins vegar var í nógu að snúast hjá lögreglu og björgunarsveitum við að aðstoða fólk vegna óveðursins sem gekk yfir landið á aðfangadag. Eitthvað tjón varð í óveðrinu en þakplötur losnuðu á nokkrum stöðum auk þess sem lausamunir voru að […]

Gáfu bæði humar og saltsíld

Vinnslustöðin færði Mæðrastyrks­nefnd Reykjavíkur á mánudaginn að gjöf humar og saltsíld til dreifingar fyrir jólin, alls 2000 450 gr. poka af humri og 2.000 eins lítra fötur af síld. Landflutningar-Samskip fluttu vörurnar til Reykjavíkur endur­gjalds­laust. Þær eru geymdar hjá Samskipum og verða fluttar til dreifingar að Fiskislóð 14. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.