Vinnslustöðin færði Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur á mánudaginn að gjöf humar og saltsíld til dreifingar fyrir jólin, alls 2000 450 gr. poka af humri og 2.000 eins lítra fötur af síld. Landflutningar-Samskip fluttu vörurnar til Reykjavíkur endurgjaldslaust. Þær eru geymdar hjá Samskipum og verða fluttar til dreifingar að Fiskislóð 14.