Eyjapeyjarnir Eiður Aron Sigurbjörnsson, leikmaður Örebro og Þórarinn Ingi Valdimarsson, sem leikur með ÍBV, hafa báðir verið valdir í fyrsta landsliðshóp nýs landsliðsþjálfara, Lars Lagerbäck. Þjálfarinn hefur boðað 28 leikmenn til æfinga 12. til 14. janúar næstkomandi en æfingarnar fara fram í Kórnum í Kópavogi. Einungis voru valdir leikmenn sem leika á Íslandi og á Norðurlöndunum í þetta skiptið.