Risaflugeldabingó handboltans í kvöld

Risa flugeldabingó Handknattleiksdeildar ÍBV – íþróttafélags verður íkvöld, fimmtudaginn 29. des. kl. 20:11 í Höllinni. Spilaðar verða 10 umferðir en vinningarnir verða glæsilegri enn nokkru sinni áður. Hinir frábæru bingóstjórar undanfarinna ára fara á kostum að venju. Fjölmennum og styrkjum íþróttastarfið í Vestmannaeyjum. (meira…)

Tónleikar í minningu Oddgeirs Kristjáns.

Í dag, fimmtudaginn, 29. desember, kl.18.00 mun Lúðrasveit Vestmannaeyja bjóða bæjarbúum og gestum á stutta tónleika í Akogeshúsinu við Hilmisgötu. Tónleikarnir eru helgaðir minn­ingu Oddgeirs Kristjánssonar, en í ár eru eins og flestum er orðið kunnugt 100 ár frá fæðingu hans. (meira…)

Eru full bjartsýni

Á gamlársdag taka nýir eigendur við Hótel Þórshamri, Hótel Mömmu og Sunnuhóli þegar hjónin Adda Sigurðardóttir og Magnús Bragason taka við lyklunum úr hendi Bjargar Guðjónsdóttur og Gísla Vals Einars­sonar. Um leið fær hótelið nýtt nafn, heitir Hótel Vestmannaeyjar frá og með áramótum. Er nafnabreytingin liður í að markaðssetja það sem þau hafa upp á […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.