Í dag, fimmtudaginn, 29. desember, kl.18.00 mun Lúðrasveit Vestmannaeyja bjóða bæjarbúum og gestum á stutta tónleika í Akogeshúsinu við Hilmisgötu. Tónleikarnir eru helgaðir minningu Oddgeirs Kristjánssonar, en í ár eru eins og flestum er orðið kunnugt 100 ár frá fæðingu hans.