Á gamlársdag taka nýir eigendur við Hótel Þórshamri, Hótel Mömmu og Sunnuhóli þegar hjónin Adda Sigurðardóttir og Magnús Bragason taka við lyklunum úr hendi Bjargar Guðjónsdóttur og Gísla Vals Einarssonar. Um leið fær hótelið nýtt nafn, heitir Hótel Vestmannaeyjar frá og með áramótum. Er nafnabreytingin liður í að markaðssetja það sem þau hafa upp á að bjóða.