Strangari öryggiskröfur þjóðhátíðar

Ef kynferðisofbeldi eykst á þjóðhátíð verður leyfi hátíðarinnar tekið til endurskoðunar, segir sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum. Hann vill bæta lýsingu á hátíðarsvæðinu og efla þar gæslu. Viðræður eru hafnar við forsvarsmenn hátíðarinnar um strangari öryggiskröfur. Þetta kom fram á www.ruv.is. (meira…)
�?jóðhátíðin er fjölskylduhátíð Eyjamanna

„Bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum þakka bréfriturum þann áhuga sem þeir hafa á öryggismálum á Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum. Þeir segja það samfélagslega ábyrgð okkar allra að hindra að ofbeldisverk séu framin. Því erum við sammála,“ segir í svari bæjarstjórnar Vestmannaeyja til 100 karlmanna sem skrifuðu undir bréf til bæjarstjórnar vegna þjóðhátíðar. (meira…)
Í ljósi fjölda tilkynntra nauðgana á þjóðhátíð 2011, verður þjóðhátíð 2012?

Fréttir hafa undir höndum bréf til ÍBV-íþróttafélgas þar sem því er beint til framkvæmdastjóra hvort eigi að halda þjóðhátíð í ár vegna fjölda nauðgana á síðustu þjóðhátíð. Í öðru lagi af hverju engu af innkomu hátíðarinnar er varið til áróðurs gegn nauðgunum. Í þriðja lagi hvort ÍBV muni greiða þeim sem urðu fyrir kynferðisárás á […]
Skeggið fer ef við skorum ekki í dag

Línumennirnir Róbert Gunnarsson og Kári Kristján Kristjánsson skarta báðir ansi vígalegu skeggi. Vísi lék forvitni á að vita hvort eitthvað sérstakt lægi þar að baki. Þeir félagar segjast ekki vera í neinni keppni en leggja skeggið undir takist þeim ekki að skora í dag gegn Noregi. Hvorugur þeirra náði að skora gegn Króatíu. (meira…)
Síðari ferð Herjólfs miðvikudag fellur einnig niður

Vegna storms sem nú gengur yfir suðurströndina neyðumst við til að fella einnig niður seinni ferð Herjófs í dag, miðvikudag. Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi. Nánari uppýsingar í síma 481-2800. Við viljum góðfúslega benda farþegum okkar á að nú getur verið hálka […]
Fyrri ferð fellur niður vegna storms

Fyrri ferð Herjólfs í dag, miðvikudag fellur niður vegna storms sem nú gengur yfir suðurströndina. Athugun með síðari ferð dagsins verður klukkan 13:00 en klukkan 6:00 í morgun var 27 metra meðalvindhraði á Stórhöfða. Þá var ölduhæð á Surtseyjardufli rúmir átta metrar í morgun. (meira…)